Translate

föstudagur, 20. september 2013

Smá "atóm"-ljóð í boði Jóns

Í öllum býr eitthvað gott.
Sumir sjá það
en aðrir ekki.
Og það eru þeir sem dæma.

Sá dómur er dauður
sem alinn er af vanþekkingu,
þeirri blekkingu 
hversdagslegra hvata -
"að hata"...

En sjá; það kennir sitt eigið!
Hlustið, ef þið megið.

Allt er sem ekkert
meðan ekkert er allt.
Sannlega segi ég
þúsundfallt:
"Ást er hinn eilífi ómur"

Engin ummæli:

Skrifa ummæli