Stein fyrir stein
skríð ég einn heim.
Tek af mér sokkana
og ég hendi þeim.
og ég hendi þeim.
Hef þurft að þræla,
grátbiðja og skæla.
Sé veginn framundan
og leiðin er greið
og leiðin er greið
en ég kemst ei alla leið.
Hef farið víðan völl,
vötn heimsins synt öll.
Hitt fullt af
furðufuglum,
bæði álfa og tröll.
bæði álfa og tröll.
Klórað í bakka
með þungan hnakka.
Drukkið með Bakkusi
á við heilan her
á við heilan her
sem í restina kálar mér.
Hef þurft að bíða
og dónaskap líða.
En gleymt því öllu
með því að detta'í'það.
með því að detta'í'það.
Rústir ég byggði
og eilíft líf tryggði.
Dansaði djöfullsdans
í engum skóm
í engum skóm
við eigin ímyndunarhljóm.
Gleðin þá búin
og ég er lúinn.
Hugur minn óheill
og öfugsnúinn.
og öfugsnúinn.
Sit sár á tröppunum,
dofinn í löppunum
Ég finn enga lykla,
búinn að týna þeim
búinn að týna þeim
og ég kemst ekki heim.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli