Translate

laugardagur, 21. september 2013

Til mömmu

 Það er margt sem ég vill segja
en ég kem því ekki frá mér, þó ég reyni.
Það er margt sem oft angrar mig.
Þegar fólk lætur mig ekki í friði 
og heldur mig sig,
þá mamma, ég hugsa um þig.
Mælirinn er víst aðeins álfur,
ég virðist vera einn í þessum heimi.
Maðurinn hugsar bara 'um sjálfan sig.
En þó upptekinn sé ég sjálfur
þá aldrei ég því gleymi
mamma, að hugsa um þig.
Mér finnst ég oft þurfa eitthvað
til að fylla upp í tómið.
Ég er oft svo einmanna.
Ef mér finnst ég ekki eiga 
neina rétta nágranna
þá mamma, ég hugsa um þig.
Ég finn það nú hversu sárt það er
að vera ekki hjá þér.
Núna er svartara skammdegið.
Ég held bara að þú aldrei 
gætir giskað hversu mikið,
mamma, ég hugsa um þig.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli