Aftanroði í Reykjavíkurborg,
rafmagnað loftið er engu líkt.
Lýsa því best línur barma meyjablóma.
Tíbrá yfir breiðir stræti 'og torg
blessun sína, tekur burtu sorg
- og elur í anda sóma.
Gefjun mér gengur samferða
götur lífsins bjagaðar og beinar.
Björgun veitist af nærveru góðra sála.
Vilji skal úr uppgjöf verða,
vakning huga til betri gerða
- afneitun svika og tála.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli