Ráðum
hef ég rúna fylgt
og ráðið bragahætti.
Sævi hugans djarfur siglt
og sorfið ýmsa þætti.
Konung himins hef ég kynnst,
keppt með honum kaldur.
Kannað yst og kafað innst
í kærleikans þrungna galdur.
Drukkið hef ég volgan dreyra,
og Draupnis litið hringa.
Mar hef sopið heldur meira,
úr horni Þórs, óþvingað.
Kanntu skilið hver ég er?
Kannastu við mitt lag?
Í sitthvoru lagi telst ég sér,
svo svaraðu mér í dag.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli