Vaknaði upp við
talandi viðtækið.
Reis þá úr rekkjunni og
lækkaði.
Það er svo skrítið,
hvað stundum þarf
lítið.
- ég á eina mynd sem
stundum talar um þig -
þegar ég hvíli mig.
Gref ég upp líkin
- sjúklega sýkin.
Sleppir ei takinu
helvítis tíkin.
Laus eru lömbin
og loftlaus er vömbin.
Ég skrifa í skýin heilu
sögurnar
sem sitja ennþá þar.
Giska á tölur meðfram
gangbrautum,
gleymi stríði á hendur
hryðjuverkum.
Læt mér leiðast yfir
mismunun,
loka'á hugsanir um tímaflökkum
meðan enginn mig hugsar
um.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli