Stýra mér stjörnur,
stjórna til mannfórna
vina..
en hvað veit ég?
Hvert á ég að skima
eftir sannleika?
Það, að minnsta kosti,
myndi breyta
minni braut
til þeirrar leitar
að afneita
öllu sem að sannleika
hallar.
Ég þarf mitt rúm
til að malla
staðreyndir við tilgátur
þó uppskerist hlátur
eða grátur
mínum megin frá,
þá
verð ég að nálgast
staðfestu
um stöku brot mynda
sem kalt mig kynda
til könnunar.
Allt er svo misskilið -
sem telst til nús
og eða
þess sem var...
ekki gjöf gefa, nema
gefjun gefna
hafir fengið
úr stjórnleysi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli