Það byrjaði allt í þátíð,
þolgæðið var valt.
Hávaða og hátíð
ég heyrði útum allt.
Grín og líka grátur;
gránar nú mitt stef...
Loforð, líka lygar,
lánuð voru mér.
-
Ég sat og skar út stjörnur,
en stefnan allt'of þröng.
Ljóstruð ljóðin önnur -
letur fært í söng.
Kapp er valtur kostur,
hver sem er það sér.
Loforð, líka lygar,
lánuð voru mér.
-
Ríkjum ánauð ræður,
rausn fokin'í rokið.
Þó glettni kyndi glæður
þá gefur undan oki.
Dýrt er stundum kveðið,
en ekki er allt sem er...
Loforð, líka lygar,
lánuð voru mér.
-
Lausn þú gafst til leiða,
lagðir breitt þinn veg.
En sauðst í leynum seiða,
sælu gefnum með.
En stundum reynist stoltið
stolið, hvort sem er.
Loforð, líka lygar,
lánuð voru mér.
-
Nú, allt að lokum verður
endalokin við.
Göfugleikinn gerður
að gömlum dæmdum sið.
Þú reyndir þér að bjarga
en þolinmæðin þykir þver...
Því loforð, líka lygar,
lánuð voru þér...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli