Translate

laugardagur, 21. september 2013

Leitandi,
ei skeitandi
og engu breytandi.
Það virðist allt svo eðlilegt,
á sama tíma nokkuð skelfilegt.
Ég reyni að komast heill í gegn,
sem þjóðarinnar þegn,
en það er mér um megn.
Ég upplifi allar lygarnar,
trúlegar en samt gegnsæjar.
            -Það ver hver sinn bróður, hvar er þinn?
            Ver hver sinn bróður? -Já.
Grátandi,
frálátandi
og sjálfum sér slátrandi.
Hann hlær af sjálfs síns gríni,
er sama þó kjósendum týni.
Þetta er nefnilega svo yndislegt;
siðleysislegt,
samt löglegt.
Það vita flestir sannleikann,
þeir þekkja hann en enginn mótmæla kann.
            -Ég er orðinn óður, stingið mér inn!
              Ertu snaróður? 
            -Já.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli