Translate

laugardagur, 21. september 2013

Vistin


Ég stend á önd meðan styð mig við glugga
og stari á álftirnar fljúga út í geim.
Við bryggjuna bíður ein lítil dugga
bara eftir því að ferja mig heim.
Þó ég vilji ekki fara er ég samt dreginn burt,
æpandi á goðin og aðrar vættir.
Það er ekki einu sinni að því spurt
hvort um vistina nokkuð ég skætti.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli