Persónur
mismunandi,
öðruvísi hugsandi -
maður við næsta mann.
Í mergðinni gleymist oft sjálfið.
öðruvísi hugsandi -
maður við næsta mann.
Í mergðinni gleymist oft sjálfið.
Staðið er í hörðu stríði,
stranglega á meðan
allt alið er í níði.
En maður reynir að skemmta sér.
Þó fátæklega gangi að safna.
(og
augljósri lygi hafna)
Í dvala er
dvalið og í vitinu falið
að sjá hvorki skýrt né heyra.
Né skilja, eða hvorki né vilja.
að sjá hvorki skýrt né heyra.
Né skilja, eða hvorki né vilja.
En eins eru allir
með sínar sálar-hallir
sem byggðar í brjóstunum standa.
Allt gefið var að utan.
Á
endastöðinni æpir
á mann – eða sérhvern þann
sem sannleikann vill taka í hjarta:
„Allt er eitt“.
á mann – eða sérhvern þann
sem sannleikann vill taka í hjarta:
„Allt er eitt“.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli