Translate

föstudagur, 20. september 2013

Raundraumar

Mig dreymdi í nótt nokkuð undarlegt,
ónákvæmt ég man allt, og þó...
-fólk, það lifði lífið blekkt -
lifnaði, svo ólst upp og dó.
Börn voru framleidd á færiböndum,
flokkuð í sunur og sorteruð sér:
Hverjir hentuðu í stjórnun á löndum
og hverjir hentuðu í allmúgaher.
Stofnanir sáu um uppeldi þjóða,
steiktu’í þeim heilan og forrituðu á ný.
Og þeim einstaklingum sem þeir sáu í gróða
þeir umbunuðu með lúxuslíf.
Hvergi var samheldni heldur geisuðu stríð
sem enginn virtist sjá fyrir enda á.
Í stað fyrir snjó, var þar blýkúluhríð
og fyrir sökudólg hvern annan bentu á.


Ég vildi vakna en ekki ég gat
viðskilið mig frá því djóki
að helmingur heimsins átti ekki mat
en hinn lifði í lífsgæðamóki.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli