Translate

laugardagur, 21. september 2013

Draumur Bakkusar (Við Bakkus í draumi)

Man ég þá mæðu sem upplifði ég
meðan áfengi hug minn fyrrti.
Stúlka bæði falleg og fönguleg,
en fyrir lítið ég hnátuna myrti.
Ég gekk hægt að og gaf henni högg,
og grýtti svo í andlitið steinum.
Á flótta hún stökk, var ekki nógu snögg
ég skar hana djúpt inn að beinum.
Hún hneig þá niður og engdist um stund,
með höfuðið blóðugt og skrapað.
Ég sparkaði í hana einsog skítugan hund
og sársauka hafði þá skapað.

Hún lá þá nær líflaus í götunni ein,
í laug af ógeði og viðbjóði.
Kreistandi upp sitt síðasta kvein,
og kafnandi á eigin blóði.
Ég fylgdist með henni dálitla hríð,
hló óður og bið hennar lengdi.
En vitandi það að verða'að enda'hennar líf,
ég vafði gaddavír um hálsinn og hengdi.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli