Ég veit að sumt er
staðreyndin ein
og sjálfsagt fleira mun
meira en það.
En kynnst hef ég sjálfur
kvennanna grein
að kreista úr manni
sálina og rífa í spað.
Þó fríðar á vanga þér
finnist þær vinur
eða fríðar og fágaðar í máli og sýn.
Þá veit ég og segi að þú
undan þeim stynur.
Lífsþrótt þinn þamba sem rónarnir vín.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli