Translate

laugardagur, 21. september 2013

Bara ef þú vissir

Þegar kertin kulna á stjökum sínum
kemur myrkrið yfir svo skjótt.
Þá vil ég helst hafa þig í örmum mínum
og hvíla með þér alla nótt.
Þú ert mitt yndi og þú ert mín ást
þó þú vitir það sjálf ekki enn.
Og erfiðara er við það að kljást
en alla heimsins sterkustu menn.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli