Translate

laugardagur, 21. september 2013

Rísandi meðvitund

Ég sá þig í gegnum nóttina
angraður - truflaður.
Andlit þitt ég sá það, fagurt.
Srapaður - hruflaður.
Tröppu hafði ég gert mér heima
er hoppaðir þú þar fram hjá.
Ég var næstum því búinn að gleyma
en mundi snögglega er horfði þig á.


Ég kallaði nafn þitt og þú namst,
nauðhemlaðir strax og á mig leist.
Í setningar orð ég get ekki bundið
um þá tilfinningu sem fékk við mér hreyft.

---
Augu þín óttast ekkert;
verndarar veraldar
minnar.
Ára þín óttast ekkert,
gætir veraldar
þinnar.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli