Hvað er hvað, miðað við
allt sem er?
Efni, máttur eða
alls 'ekki neitt?
Það dæmir vízt hver
eftir sjálfum sér
en samtíðinni fæst þó 'ekki
breytt.
Né útskýringar neinar dregnar
út
okkar
eilífðarspurningum við.
Þau eru til svörin en
þau eru í hnút
við það sem við gerum
að sið.
Ef við flokkum í sundur
úr þeim siðavenjum
sem óspurð við erum öll
forrituð af,
við losnum við girnd og
við losnum við gremju.
Við losnum við
þjáningu, eitt vízt er það.
Leiðin er þó falin í
fjarlægri tíð,
fallega ofin í tilbúið
lín.
Og þó mannshugurinn sé
mögnuð smíð,
seint mun hann meðtaka
draumaorð mín.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli