Translate

föstudagur, 20. september 2013

Gengið blint til verks

Ég sjálfur upp stóð, 
í svarta nóttina óð
og uppskar þar lífsins ljóð.
Þá sá ég fyrsta sinn
sigur vors og blóma.
En allt þó í laumi -
viltum draumi.
Og svo fæddist ég aptur
til þess eins að deyja.
Lífið dró fram sína fegurð 
í fyrsta og síðasta sinn.

Fyrir allan peninginn
býð ég því
báðar mínar kinnar.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli