Translate

laugardagur, 21. september 2013

Ort á skyteríi

Yrki ég nú ferskeytlu ei ætlaða börnum
um ofsaför mína á klósetið.
Ég hélt sjálfan satan vera í mínum görnum!
Svei mér, hvað hafði ég étið?
Ég sat þarna aumur og engdist af kvöl,
augu mín orðin rauð og þrútin.
En ég frelsaði Mandela, þó ekki með þjöl
og þakklátur þurkaði stútinn.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli