Sjáðu við ágangi sýktra sála, nýttu þér neikvæða sáttmála - málhömlur, meinaðrar mýktar þeirra sem kunna ekki blíðu að tala; ófrjáls, frá reglu siðbóta foreldra sinna... HaHa! en sú fásinna - glötun menningar hinnar heilögu þrenningar; eða: „Ég um mig frá mér til mín“ - eða þín? Ráðum fæst ráðið undan bagga málhömlunar. Lengi lifi sá sem slengir löngutöng á móti þeim slefandi þrælum sem taldir eru í jafnvægi - en bakvið kjaftæði laga - lyga, sig fela.
Reyndu bara að rifja upp róg gleðinnar, þeirrar er þú fyrst kynntist í bernsku, en gleymdir... En reyndu - reyndu! Reyndu að spá í tal spjátrunganna; spjall þeirra, í óðum hamagangi... Þó þér máske ekki langi.
- en-
Greindu milli orða hið harmþrunga mal; hinn dauði sónn - lifandi tóm, þá án efa færð sefað þinni forvitni.
-
Að enda leiðir sérhver byrjun, framhjá sneiðir - en hugann þó seiðir. Himnesk gjöf, gefin er huga án endurgjalds og fram að lokum mun duga. Dugar, þar til að lokum kemur; þegar drottinn á dyrnar lemur - þá veistu innst inni að allt sem þú vannst þér inn var bara hland... -bjór drukkinn til vellíðunar, en nú tómir þínir Urðarbrunnar móti þér gapa; þín ímyndun sem þú sjálfinu skapar í góðri trú...
En með þessu athæfi - sem einungis leiddi að athlægi veru þinnar - þó í ró og næði, gerði eitt og sér meira en nóg. Sjáðu - og þér verður sýnt; heyrðu - og þér heyrist nýtt - orð - ólýsanlegt... Og já, reyndu; mundu, geymdu, og aldrei, aldrei því gleymdu!
- að -
Þú ert „það“ því „það“ ert þú...
svo ræktaðu vel og vertu því trúr!