Brennivín og bjór...
Færðu mér brennivín og bjór!
- Svo batni minn hugur;
verði' aftur sljór.
Hér sit ég einn, leiður,
ófullur - ófrjór -
því sál mína vantar
soðið brennivín
og bjór...
Samansafn af öllu því efni sem ég hef talið vert að skilja eftir ritað á blaði eða tölvutæki.
Translate
mánudagur, 8. júlí 2019
Sjá meira
Ég sýp blóð úr dauðum dýrum,
blóð sem hefur dropað niður
smogið gegnum jörðina
og orðið að næringu aldinna
og lífsneista jurtanna.
blóð sem hefur dropað niður
smogið gegnum jörðina
og orðið að næringu aldinna
og lífsneista jurtanna.
Ég et gróður sprottinn úr skít,
skít sem hefur droppað niður
smogið gegnum jörðina
og orðið að næringu aldinna
og lífsneista jurtanna.
skít sem hefur droppað niður
smogið gegnum jörðina
og orðið að næringu aldinna
og lífsneista jurtanna.
Hugleiðing daxins, þann níenda júníus complexus
Æðið mun seint af mèr teljast,
èg skrítinn er og fèkk'ekki að velja
neitt um það, nè um þaðáð segja
nokkuð, og furðulegur èg mun því deyja.
èg skrítinn er og fèkk'ekki að velja
neitt um það, nè um þaðáð segja
nokkuð, og furðulegur èg mun því deyja.
Èg er ekkert að kvarta og í rauninni kann ekki...
Kímni er vopn mitt og þó hlekkir
sèu bundnir um fætur mína báða;
böl èg óska þeim sem yfir mèr ráða.
Kímni er vopn mitt og þó hlekkir
sèu bundnir um fætur mína báða;
böl èg óska þeim sem yfir mèr ráða.
En samt, eftir allt, mun èg ávalt þá elska.
Ástæðu til haturs èg sè enga helsta.
Mannskepnan er sköpuð til að beita
skökku rèttlæti til þeirra sem yfirvaldi afneita.
Ástæðu til haturs èg sè enga helsta.
Mannskepnan er sköpuð til að beita
skökku rèttlæti til þeirra sem yfirvaldi afneita.
Þad er bara því midur á þann veginn.
Þad er líka þad sem afvegaleiðir
mannskepnunar til að meðtaka og ekki skilja
máttinn sem þær hafa til ad fá þad sem þær vilja.
Þad er líka þad sem afvegaleiðir
mannskepnunar til að meðtaka og ekki skilja
máttinn sem þær hafa til ad fá þad sem þær vilja.
Frelsi.
Ekki helsi.
Heldur heimta
það löngu gleymda
til baka - lífið.
Endurheimta þífið
frá ræningjunum -
svo syngjum:
"Einn fyrir alla, allir fyrir einn!"
Fuck you
and
your absurd culture!
Ekki helsi.
Heldur heimta
það löngu gleymda
til baka - lífið.
Endurheimta þífið
frá ræningjunum -
svo syngjum:
"Einn fyrir alla, allir fyrir einn!"
Fuck you
and
your absurd culture!
- Triple X, respect to you!
Hægri efri skankann hefjum upp,
höldum fingrunum kreftum og krefjumst
afnáms spillingar og allmennrar nauðgunar
alræðis-auðsöfnunnar
gagnvart okkur fólkinu,
hinna sönnu erfingja
auðlinda jarðarinnar!
Frelsum svo löngutöng!
höldum fingrunum kreftum og krefjumst
afnáms spillingar og allmennrar nauðgunar
alræðis-auðsöfnunnar
gagnvart okkur fólkinu,
hinna sönnu erfingja
auðlinda jarðarinnar!
Frelsum svo löngutöng!
Nú er tími hinna rèttlátu íkveikja norna!
Afturkall til tíma náttúrunnar!
Við erum fólk, ekki fokkin þrælar!
Fynnum aptur hið innra,
látum okkur ekki myrða til þöggunar!
Segjum sönnu sögurnar!
Afturkall til tíma náttúrunnar!
Við erum fólk, ekki fokkin þrælar!
Fynnum aptur hið innra,
látum okkur ekki myrða til þöggunar!
Segjum sönnu sögurnar!
Sýnum heiminum hverjir sigra þegar því kemur,
særum þrjótana sem lifa af
á eftirlaunum ömmum okkar og afa!
særum þrjótana sem lifa af
á eftirlaunum ömmum okkar og afa!
"Látum þá drekka hland,
og hèr mun rísa fyrirmyndarland"!
og hèr mun rísa fyrirmyndarland"!
Um leið, leiðum hugann ad börnunum,
látum þau ekki verda undan upplýsingunum,
kennum þeim rèttláta, kærleiksríka uppbyggingu
á kerfi sem þjónar öllu mannkyninu.
Án misrèttis til kynþátta, kynhneigða eða lífsfyllingar!
Krefjumst betrunar,
leiðir til batnaðar
og að það sè bannað að skilja útundan!
látum þau ekki verda undan upplýsingunum,
kennum þeim rèttláta, kærleiksríka uppbyggingu
á kerfi sem þjónar öllu mannkyninu.
Án misrèttis til kynþátta, kynhneigða eða lífsfyllingar!
Krefjumst betrunar,
leiðir til batnaðar
og að það sè bannað að skilja útundan!
Við erum öll í sama liði,
við erum öll bestu vinir
sem börn,
svo tekur eitthvad illt yfir...
við erum öll bestu vinir
sem börn,
svo tekur eitthvad illt yfir...
Ranglæti, í kringum
aldurinn um fermingu
vid lærum,
vegna illrar innrætingar
og brenglaðrar menntunar
þeirra sem ráða
og semja reglurnar
til rèttlætingar
sinna vitfirrtu sýna
og falsaðr upplýsinga.
Það er það sem þeir svo í skólunum kenna.
aldurinn um fermingu
vid lærum,
vegna illrar innrætingar
og brenglaðrar menntunar
þeirra sem ráða
og semja reglurnar
til rèttlætingar
sinna vitfirrtu sýna
og falsaðr upplýsinga.
Það er það sem þeir svo í skólunum kenna.
Vöknum kæru vinir, systkyn - vöknum!
Sýnum kærleika, samstöðu og þökkum
sjálfu lífinu fyrir med pökkum
fylltum auðmýkt frá okkar innra,
fordóma og spillingar skulum svo myrða.
sjálfu lífinu fyrir med pökkum
fylltum auðmýkt frá okkar innra,
fordóma og spillingar skulum svo myrða.
Höldum uppá heilögu Jólin, Ramadan og Ljósahátíðina,
sem og hátíðir "frumbyggja",
sameinaðar sem tákn einingar
mannkynsins í baráttu vid illskuna,
það afl sem knúði okkur til sundrunar:
Peninga, arðrána, þjóðarmorða
og kerfisbundinna spillingar!
sem og hátíðir "frumbyggja",
sameinaðar sem tákn einingar
mannkynsins í baráttu vid illskuna,
það afl sem knúði okkur til sundrunar:
Peninga, arðrána, þjóðarmorða
og kerfisbundinna spillingar!
Vöknum kæru vinir og systkyn -vöknum...
Takk fyrir að lesa,
hlusta med augunum
og hugsa.
Èg innilega frá hjartanu vonað
èg hafi'ekki valdið neinum usla.
hlusta med augunum
og hugsa.
Èg innilega frá hjartanu vonað
èg hafi'ekki valdið neinum usla.
Meininginn er að við sameinumst gegn ríki þursa,
arðræningjum og lygurum.
Það er það eina sem èg bið um:
arðræningjum og lygurum.
Það er það eina sem èg bið um:
Vöknum, kæru vinir og systkyn - VÖKNUM!
Hrafninn drukkinn
Með blaki sinna
svörtu vængja
hann sýnir mèr
með hverri fjöður
andardrátt aldanna.
svörtu vængja
hann sýnir mèr
með hverri fjöður
andardrátt aldanna.
Blekbytta skýjanna.
Út frá hjarta
heimsins sækja
falin skilaboð
Allsherjarföðurs;
fagnaðu falli fíflsins!
heimsins sækja
falin skilaboð
Allsherjarföðurs;
fagnaðu falli fíflsins!
Fæðingarhríðir fegurðar.
-
Allt er í engu,
en samt...
en samt...
-
Yfirdrifin alsæla normsins,
enginn hefur lamið biskup.
enginn hefur lamið biskup.
Dagamunur
Frá botni dalsins sèst til toppsins.
Frá toppi fjallsins sèst til botnsins.
Sólin og stjörnurnar eru eins frá báðum stöðum litið.
-
nema þegar er þoka.
Frá toppi fjallsins sèst til botnsins.
Sólin og stjörnurnar eru eins frá báðum stöðum litið.
-
nema þegar er þoka.
Að vera alkóhólisti á Íslandi
Leiðir liggja til allra átta,
en èg finn bara'ekki leiðina heim.
Reykjavíkur-blæti
en èg finn bara'ekki leiðina heim.
Reykjavíkur-blæti
Kær kveðja
Fingur hef èg fína mèr
fimm á hvorri hendi.
Langatöng þó best èg tel
traustust boð mín sendi.
fimm á hvorri hendi.
Langatöng þó best èg tel
traustust boð mín sendi.
- sjúddann!
Fjallstoppurinn
Skoraði sköpun mín
skemmst frá að segja
magnaðri misskilning
en menn kann að dreyma...
skemmst frá að segja
magnaðri misskilning
en menn kann að dreyma...
En èg lærði að umræður um aðrar víddir
og fegurðina við dauðann
eiga ekki heima í "smáspjalli"
við fólk sem talar helst bara um veðrið
- við alla, allsstaðar og alltaf -
í miðri skírnarveislu eða í strætó...
og fegurðina við dauðann
eiga ekki heima í "smáspjalli"
við fólk sem talar helst bara um veðrið
- við alla, allsstaðar og alltaf -
í miðri skírnarveislu eða í strætó...
Fólk vill bara kökur, kaffi og kjaftæði
sem kemur engum að gagni.
...silly me
sem kemur engum að gagni.
...silly me
Maður er samt alltaf að læra.
Vangaveltur yfir tómu glasi
Raunveruleikinn
er ekki til
í raun og veru.
Draumur dreymdur
glaumur gleymdur
alvara alls
og einskis.
Tíminn dansar tangó
á Tenerife.
Allt uppá grín.
Að eilífu
- Harlem!
er ekki til
í raun og veru.
Draumur dreymdur
glaumur gleymdur
alvara alls
og einskis.
Tíminn dansar tangó
á Tenerife.
Allt uppá grín.
Að eilífu
- Harlem!
Laugardagurinn 13. febrúar tvöþúsundogsextán, um og yfir hádegi
Í dag ætla èg að vera.
Vera vera með margt að gera
þó ekkert innilega.
Ætla barað gera það
sem verur sem eru gera.
Anda inn
anda út.
(kannski èg fái mèr að neðan)
Skiptir ekki máli
- það er sól.
Vera vera með margt að gera
þó ekkert innilega.
Ætla barað gera það
sem verur sem eru gera.
Anda inn
anda út.
(kannski èg fái mèr að neðan)
Skiptir ekki máli
- það er sól.
Allt var betra í denn
þegar èg kaupi mèr sígerettupakka
sem gerist sjaldan
kaupi èg mèr Camel með filter
í mjúkum pakka
sem gerist sjaldan
kaupi èg mèr Camel með filter
í mjúkum pakka
annað en Júlli afi,
hann reykti "stuttan"
èg legg ekki í það
því
nú eru tímarnir aðrir
hann reykti "stuttan"
èg legg ekki í það
því
nú eru tímarnir aðrir
Að átta sig loks
Ljósið skýn
við enda
gangnanna.
við enda
gangnanna.
Ferlega er
èg feginn að
loks fá það
að faðma
og falla.
èg feginn að
loks fá það
að faðma
og falla.
Alltílagibless
Bruggað í hljóði bætur
Það gengur í hring;
hring eftir hring.
Eymurinn eflir sig
og eltir vind.
- Rignir að ofan
á bárujárnskofann -
Veðurguðirnir vel leika hèr,
virða allt fyrir sèr.
hring eftir hring.
Eymurinn eflir sig
og eltir vind.
- Rignir að ofan
á bárujárnskofann -
Veðurguðirnir vel leika hèr,
virða allt fyrir sèr.
Skrifað í stein,
samitzkan hrein.
Lúrir á larfinum
hin lævísa grein.
- Grátmúrinn hruninn,
oflætið urið -
Framtíðin ekki til, fortíðin fölsk!
Vit mitt er loks við völd.
samitzkan hrein.
Lúrir á larfinum
hin lævísa grein.
- Grátmúrinn hruninn,
oflætið urið -
Framtíðin ekki til, fortíðin fölsk!
Vit mitt er loks við völd.
Arinn minn eflist
og um leið teflir
drottningin krúnunni út'á svellið.
- Hefst af stað heimför;
afskorin herör -
Gangurinn langur
og hann lengist enn meir...
Einn plús einn er tveir.
og um leið teflir
drottningin krúnunni út'á svellið.
- Hefst af stað heimför;
afskorin herör -
Gangurinn langur
og hann lengist enn meir...
Einn plús einn er tveir.
Að skrifa niður drauma sína
Þeir spáðu stormi
en ég stend í logninu.
Þeir spáðu úrhelli
en ég stend í sólstöfum.
en ég stend í logninu.
Þeir spáðu úrhelli
en ég stend í sólstöfum.
Þeir spáðu hallæri
en ég stend í góðæri.
Þeir spáðu sundrung
en ég stend í eindinni.
en ég stend í góðæri.
Þeir spáðu sundrung
en ég stend í eindinni.
Þeir spáðu stríðinu
en ég stend í friðinum.
Þeir spáðu dauðanum
en ég stend í lífinu.
en ég stend í friðinum.
Þeir spáðu dauðanum
en ég stend í lífinu.
Þeir spáðu tómri auðn
en ég stend í fylltri heild.
Þeir spáðu um fyrir engu
en ég stend í öllu - eitt.
en ég stend í fylltri heild.
Þeir spáðu um fyrir engu
en ég stend í öllu - eitt.
Grúfað á grýttri þúfu, á grúfu með græna húfu
Meðfram fljótum sléttanna vertu nú vís
að virða fyrir þér það æði sjónarspil.
Efldur, gefðu gaum og legðu fullt lið
- í náttúru lífsins, og þinni.
að virða fyrir þér það æði sjónarspil.
Efldur, gefðu gaum og legðu fullt lið
- í náttúru lífsins, og þinni.
Línur bergja liggja saman við
ljós gylltan himinn í bláum lit.
Ber við augun fegurð og meira til
- í náttúru landsins og þinni.
ljós gylltan himinn í bláum lit.
Ber við augun fegurð og meira til
- í náttúru landsins og þinni.
Sígur niður sól í vestri,
leggur sig niður vindur
...með myndum.
leggur sig niður vindur
...með myndum.
Silfur nætur og rignir niður kyrrð.
Leggur á akra sig döggin yfir,
lífið áfram gengur hring í hring
- í náttúru heimsins, og þinni.
Leggur á akra sig döggin yfir,
lífið áfram gengur hring í hring
- í náttúru heimsins, og þinni.
Lífsins syngur tóna spörfuglinn,
sveiflast greitt taktfasti pendúllinn.
Andardráttur lífs er út og inn
- í náttúru andans, og þinni.
sveiflast greitt taktfasti pendúllinn.
Andardráttur lífs er út og inn
- í náttúru andans, og þinni.
Sígur niður sól í vestri,
leggur sig niður vindur
...með myndum.
leggur sig niður vindur
...með myndum.
Prósi úr ljósi
Èg heyrði tvær manneskjur vera að ræða bókstafstrú í dag. Önnur talaði fyrir hönd hinnar víruðu (vímuðu) kristni í sínu víða samhengi boðskapar Jèsús nokkurs, kallaðan spámann, og hin talaði fögur skreyttum orðum um fyrir hina vímuðu (víruðu) fylgismenn Múhameðs nokkurs, kennda við spámann.
Allavega.
Èg kom að á hjóli.
Aðvífandi heyrði èg aðra mannskepnuna þenja raddbönd sín og segja:
"...og hver er þá hinn sanni guð".
Èg bremsaði og bauð góðan dag.
Aðvífandi heyrði èg aðra mannskepnuna þenja raddbönd sín og segja:
"...og hver er þá hinn sanni guð".
Èg bremsaði og bauð góðan dag.
Þau samþyktu.
Èg sagðist hafa heyrt samtalið og baðst afsökunar á inngripi mínu. Þau veittu mèr hana og horfðu spyrjandi á mig. Èg lagði frá mèr hjólið og sagði stutt:
"Það eru allir að tala um það sama, öll trúarbrögð, allir sem bregða fyrir sig trú, allir sem reyna. Á endanum ljómar fyrir þeim sem þráir sá skilningur að 'mistík' allrar andlegrar iðkunnar er sú sama þeirra á milli og leiðarendi þeirra alla er 'ljósið' - hið allra eina"
"Það eru allir að tala um það sama, öll trúarbrögð, allir sem bregða fyrir sig trú, allir sem reyna. Á endanum ljómar fyrir þeim sem þráir sá skilningur að 'mistík' allrar andlegrar iðkunnar er sú sama þeirra á milli og leiðarendi þeirra alla er 'ljósið' - hið allra eina"
Þar með sló ákveðin þögn yfir, þögn sem bar með sér sátt þeirra beggja um viðnám, virðingu og viðurkenningu á rökum hvors annars og upplifun...
Báðar mannskepnunar frusu við í spori og sættust á núllpunkti um rök sín gegn hvoru öðru sem ómerk, vegna þess óvara sem inngrip mitt olli svo greinilega, en allveg óvart.
Svo önnur röddin bjó sig um og kváði:
"Ertu í gvuðfræði"?
Svo önnur röddin bjó sig um og kváði:
"Ertu í gvuðfræði"?
Èg hló af "hissingi" og svaraði:
"Nei reyndar ekki, èg hef bara setið með sjálfum mèr í miðri náttúrunni og spurt svara. Ekki bara það, þá hef ég þolinmóður beðið og hlustað, reykt stundum arfa og í mig öli sturtað.
En èg hlustaði og èg heyrði...
Og svarið er einfalt".
"Nei reyndar ekki, èg hef bara setið með sjálfum mèr í miðri náttúrunni og spurt svara. Ekki bara það, þá hef ég þolinmóður beðið og hlustað, reykt stundum arfa og í mig öli sturtað.
En èg hlustaði og èg heyrði...
Og svarið er einfalt".
Starandi horfðu þau á mig sitt í hvoru lagi og til skiptis; sinn hvor postulinn frá sínu hvoru horni hinna ráðandi metsölubóka Mesópótaníu til forna,
og spurðu í kór:
"Og hvert er þá svarið?"
og spurðu í kór:
"Og hvert er þá svarið?"
Èg brosti í kampinn og sagði frá mínu eina viti og bestu vitund:
"Ekkert"
"Ekkert"
Þau urðu "snúin", hálf óviðbúinn.
Svo hlógu þau, eins og börn gera þegar þau leika sèr frjáls.
Svo hlógu þau, eins og börn gera þegar þau leika sèr frjáls.
Ég hjólaði af stað, óskaði þeim gæfu og veifaði...
Þau bara brostu og hurfu mèr út í tímann og rúmið.
Þau bara brostu og hurfu mèr út í tímann og rúmið.
Ég andaði djúpt, horfði til fjallanna og himinsins.
Þakkaði náttúrunni fyrir mig, fyrir sig...
Þakkaði náttúrunni fyrir mig, fyrir sig...
Síðan rak èg við útí alheiminn án þess að afsaka það!
Að vera þakklátur 'aflinu'
Úr heiðskýrum hugskotum
holskeiflur anda míns efli
með alúðar atlotum;
aheiminn èg við tefli.
holskeiflur anda míns efli
með alúðar atlotum;
aheiminn èg við tefli.
Ötull má halur önd sína megna,
örugglega mastur sitt reisa;
þenja sín þykku segl og egna
Sæþóri að mátt sinn leysa.
örugglega mastur sitt reisa;
þenja sín þykku segl og egna
Sæþóri að mátt sinn leysa.
Kröftum sínum krefst að stýra
hverjum þeim sem yrkir dug
átt í þá er þenur hýra
elju til þrauta og trú á hug.
hverjum þeim sem yrkir dug
átt í þá er þenur hýra
elju til þrauta og trú á hug.
Dreyra manna skal drjúpa,
svo drengilega að goðum krjúpa.
Heimdall átíð góðu áheita;
heimta èg Valhöll að lokum í leita.
svo drengilega að goðum krjúpa.
Heimdall átíð góðu áheita;
heimta èg Valhöll að lokum í leita.
Hversdagsleg upphrifning
Lífið er lukka
... ótæmandi
rabbabara-
sultukrukka.
... ótæmandi
rabbabara-
sultukrukka.
My Way
In space, I have my place.
With the stars, so very far
...away.
With the stars, so very far
...away.
My life, has been great.
So far, and today
...I feel alive.
So far, and today
...I feel alive.
- Every day is not the same,
new things happen along my way.
new things happen along my way.
On my friends, I depend.
And family, is all I see
...I feel blessed.
And family, is all I see
...I feel blessed.
- Every day is without hate,
the light of love steers my way
the light of love steers my way
Heillaráð
Þegar lund er lin og veik
leyfðu þèr að sötra
bjór og lèttan gerðu leik
og leystu þína fjötra.
leyfðu þèr að sötra
bjór og lèttan gerðu leik
og leystu þína fjötra.
og á ensku:
When your mood is soft and sick
let your self go for a sip
of beer and easy make the game
by loosening all of your restrains.
let your self go for a sip
of beer and easy make the game
by loosening all of your restrains.
Nýársraus 2019
Ár er liðið; lottómiði.
Með vinning,
en hann er útrunninn
einsog áður.
Enginn varð smáður.
Reykháfur
fyrir varðeldinn sem
sífellt logar.
Tíminn togar til sín
bensín á bálið.
Tímamóta-sálir,
takk fyrir liðna árið.
Megi gæfan ykkur fylgja
og varðveitast,
èg óska þess heitast.
Enginn er svo týndur
að hans má ekki leita.
Valkvíði og streita.
Ekki til.
Því nú skal fagna
af gömlum sið.
Skála, skála
Og borða óhollt á milli mála.
Strengja heit
og við þau standa.
Bera boðskapinn
til annara landa.
Eymd og volæði til fjandans.
Klapp klapp fyrir þeim
sem þora.
Þetta kemur allt
er fer að vora.
Svo kemur sumarið.
Èg bið um frið.
Árstíðirnar eru svo
skemmtilega
margbreitilegar.
Einsog mannfólkið.
Hvert einasta barn
er hólpið ef
forðast það slúðrið
og skólpið.
Aftur, èg óska
ykkur gæfu
á nýju ári.
Brauð með kæfu
græðir sárið.
Megi þið njóta
lífsins sem skjótast
og gleyma harðindum.
Og aldrei hætta að reyna.
Magareina.
Takk fyrir allt,
þúsundfalt.
Lifið í lukku
en ekki með hrukkur.
Hèr með og úr þessu
lýk èg minni messu.
Með vinning,
en hann er útrunninn
einsog áður.
Enginn varð smáður.
Reykháfur
fyrir varðeldinn sem
sífellt logar.
Tíminn togar til sín
bensín á bálið.
Tímamóta-sálir,
takk fyrir liðna árið.
Megi gæfan ykkur fylgja
og varðveitast,
èg óska þess heitast.
Enginn er svo týndur
að hans má ekki leita.
Valkvíði og streita.
Ekki til.
Því nú skal fagna
af gömlum sið.
Skála, skála
Og borða óhollt á milli mála.
Strengja heit
og við þau standa.
Bera boðskapinn
til annara landa.
Eymd og volæði til fjandans.
Klapp klapp fyrir þeim
sem þora.
Þetta kemur allt
er fer að vora.
Svo kemur sumarið.
Èg bið um frið.
Árstíðirnar eru svo
skemmtilega
margbreitilegar.
Einsog mannfólkið.
Hvert einasta barn
er hólpið ef
forðast það slúðrið
og skólpið.
Aftur, èg óska
ykkur gæfu
á nýju ári.
Brauð með kæfu
græðir sárið.
Megi þið njóta
lífsins sem skjótast
og gleyma harðindum.
Og aldrei hætta að reyna.
Magareina.
Takk fyrir allt,
þúsundfalt.
Lifið í lukku
en ekki með hrukkur.
Hèr með og úr þessu
lýk èg minni messu.
Lotugræðgi auðvaldsstefnunnar
Háir hamrar ris-kastalans
tróna yfir hempudansleiknum
sem haldinn er í boði
heimskulegra jakkalakkakalla.
Það er sjálfalin streituröskun
áfalla og frákalla
himnahöfðingjanna í austri
sem botnar síðan raupið.
Helga Helga heldur á spilastokk
og rímar það við orðið "fokk".
En Helga Helga þvær ekki þvott,
heldur snýr hún uppá sig glott.
Afsökun fyrir alþýðuna
í formi gátta og glufa
í bókstaf laganna saminna
af bófum og ganglerum
samvizkusamlega á þverbak.
Furðulega gengur að finna
rètta hljómfallið svo sinfónían
geti gengið fyrir sig
í hringi fyrir lífstíð.
En það hlýtur að reddast.
Það reddast alltaf allt.
Og ef ekki, þá skiptir það ekki máli.
Börn alin á káli og gúrkum
af bakarasmiðum og skúrkum
sem búa með hjúkkum
- hjúkket -
og hananú fyrir klukkan þrjú.
Nema um jólin, þá er það klukkan ellefu.
Þegiðu. Stundum. Alltaf.
Og allt það.
Kastalinn stendur á túni,
austan megin við lækinn.
I like it.
Hirðin er á flúní
og ræður ekki við svipbrigðin
sem stökkva fram
einsog kettir í hanaslag.
Það er nú það.
Kastalinn er fullur af gulli og vínsulli
sem í sjálfu sèr
sèr sjálfu sèr og öllum,
sèrstaklega og sèr,
fyrir konunglegu bulli
sem ómar meðal hljóma-tóna.
Nýr gluggi; klippa, líma og vista.
Sistah.
Líkkista og hitakassi.
Tenór og bassi.
Hver er munurinn á listaverki og krassi? Eftirnafnið.
Yfirhafnir fyrir þá
sem eru yfir aðra hafnir.
Partýblaðra.
Engill sem er naðra.
Hann er fallinn kallinn.
Fallin spýta sem ekki lengur
er hægt að nýta
nema til þess að sparka í.
Spýtan er inní herberginu
við hliðina á klósetinu
sem glatt ètur skít.
Það er vel við hæfi
að þau eyði sinni ævi
þar sem darraðadansinn
er stiginn í sölum ris-kastalans
á túninu austan meginn við lækinn
sem frækinn liðast niður
hlíðar himnabjarganna,
þaðan sem raddirnar koma.
Að ofan.
Jakkalakkakallarnir
höfðu fengið kallanir
hver einn og einasti (líka sá fallni),
allir, um hvernig ætti í bræði
að gera allt brjálað á milli mála.
Helst á milli hádegis
og seinna kaffisins.
Loksins.
Loksins veit einhver hvenær
eitthvað má eitthvað einhvern tímann.
Hver fann upp símann?
Hver er þessi Frímann?
Hann er brotinn, það þarf að lím'ann
svo hann verði aftur heill í framan,
ekki þessi gríma
sem leitt hefur hann til leiða
svo mikils að hann leiður
hefur alið sjálfstraustið
að hausti
í lokuðu klaustri
með blýant.
Allt er samt, en samt ekki.
Èg rúlla bíldekki
niður slóða með kekki
og fulla sekki
af drukknandi möðkum.
Èg kann bara að bulla
en raunin er að í draumi
èg geri það á þann veg
vegna þess að svarið er falið
í höfuðstöfum
á mismunandi stöðum
í mismunandi röðum
og misvísandi tilgangi.
Langi svangi Mangi
á gangi um ganginn
sem liggur ekki heldur hangir
niður meðfram gluggunum
sem snúa hvort um sig
í austur og vestur.
Meðhjálpari og prestur
labba inná bar
þar sem kjúklingur var sestur
á undan klukkunni.
Klukkan er nefnilega sjúklingur,
sýkt af veiru
sem hefur hundrað eyru
með meiru.
Læknarnir standa á gati,
skilja ekki í neinu,
en skrifuðu uppá nokkrar línur á dag,
límonaði og bað.
Á meðan gerðist það
að presturinn stökk á bak
og meðhjálparinn lak
niður einsog málning á striga
þegar hún er ennþá blaut.
Af þessu hlaut enginn skaða.
Kastalinn var byrjaður að riða
áður en tekið var til miða
og á hann skrifað:
"Lotugræðgi auðvaldsstefnunnar."
Síðan fèll hann saman,
stein fyrir stein,
þangað til ekkert stóð eftir
nema klósettið sem ètur skít
og spýtan sem til einskis er nýt
nema'að til'að sparka í.
Þá sagði klósettið:
"Èg hef ekkert nema saur ètið"
og spýtan svaraði:
"Viltu bit"?
og rètti fram smárètti,
nefið uppá bretti
og söng stefið við Húsið á Slèttunni.
Búsið í flèttunni.
Svo fóru þau í sleik.
Hundur undir stýri,
Sogamýri.
Að eilífu, Salem.
tróna yfir hempudansleiknum
sem haldinn er í boði
heimskulegra jakkalakkakalla.
Það er sjálfalin streituröskun
áfalla og frákalla
himnahöfðingjanna í austri
sem botnar síðan raupið.
Helga Helga heldur á spilastokk
og rímar það við orðið "fokk".
En Helga Helga þvær ekki þvott,
heldur snýr hún uppá sig glott.
Afsökun fyrir alþýðuna
í formi gátta og glufa
í bókstaf laganna saminna
af bófum og ganglerum
samvizkusamlega á þverbak.
Furðulega gengur að finna
rètta hljómfallið svo sinfónían
geti gengið fyrir sig
í hringi fyrir lífstíð.
En það hlýtur að reddast.
Það reddast alltaf allt.
Og ef ekki, þá skiptir það ekki máli.
Börn alin á káli og gúrkum
af bakarasmiðum og skúrkum
sem búa með hjúkkum
- hjúkket -
og hananú fyrir klukkan þrjú.
Nema um jólin, þá er það klukkan ellefu.
Þegiðu. Stundum. Alltaf.
Og allt það.
Kastalinn stendur á túni,
austan megin við lækinn.
I like it.
Hirðin er á flúní
og ræður ekki við svipbrigðin
sem stökkva fram
einsog kettir í hanaslag.
Það er nú það.
Kastalinn er fullur af gulli og vínsulli
sem í sjálfu sèr
sèr sjálfu sèr og öllum,
sèrstaklega og sèr,
fyrir konunglegu bulli
sem ómar meðal hljóma-tóna.
Nýr gluggi; klippa, líma og vista.
Sistah.
Líkkista og hitakassi.
Tenór og bassi.
Hver er munurinn á listaverki og krassi? Eftirnafnið.
Yfirhafnir fyrir þá
sem eru yfir aðra hafnir.
Partýblaðra.
Engill sem er naðra.
Hann er fallinn kallinn.
Fallin spýta sem ekki lengur
er hægt að nýta
nema til þess að sparka í.
Spýtan er inní herberginu
við hliðina á klósetinu
sem glatt ètur skít.
Það er vel við hæfi
að þau eyði sinni ævi
þar sem darraðadansinn
er stiginn í sölum ris-kastalans
á túninu austan meginn við lækinn
sem frækinn liðast niður
hlíðar himnabjarganna,
þaðan sem raddirnar koma.
Að ofan.
Jakkalakkakallarnir
höfðu fengið kallanir
hver einn og einasti (líka sá fallni),
allir, um hvernig ætti í bræði
að gera allt brjálað á milli mála.
Helst á milli hádegis
og seinna kaffisins.
Loksins.
Loksins veit einhver hvenær
eitthvað má eitthvað einhvern tímann.
Hver fann upp símann?
Hver er þessi Frímann?
Hann er brotinn, það þarf að lím'ann
svo hann verði aftur heill í framan,
ekki þessi gríma
sem leitt hefur hann til leiða
svo mikils að hann leiður
hefur alið sjálfstraustið
að hausti
í lokuðu klaustri
með blýant.
Allt er samt, en samt ekki.
Èg rúlla bíldekki
niður slóða með kekki
og fulla sekki
af drukknandi möðkum.
Èg kann bara að bulla
en raunin er að í draumi
èg geri það á þann veg
vegna þess að svarið er falið
í höfuðstöfum
á mismunandi stöðum
í mismunandi röðum
og misvísandi tilgangi.
Langi svangi Mangi
á gangi um ganginn
sem liggur ekki heldur hangir
niður meðfram gluggunum
sem snúa hvort um sig
í austur og vestur.
Meðhjálpari og prestur
labba inná bar
þar sem kjúklingur var sestur
á undan klukkunni.
Klukkan er nefnilega sjúklingur,
sýkt af veiru
sem hefur hundrað eyru
með meiru.
Læknarnir standa á gati,
skilja ekki í neinu,
en skrifuðu uppá nokkrar línur á dag,
límonaði og bað.
Á meðan gerðist það
að presturinn stökk á bak
og meðhjálparinn lak
niður einsog málning á striga
þegar hún er ennþá blaut.
Af þessu hlaut enginn skaða.
Kastalinn var byrjaður að riða
áður en tekið var til miða
og á hann skrifað:
"Lotugræðgi auðvaldsstefnunnar."
Síðan fèll hann saman,
stein fyrir stein,
þangað til ekkert stóð eftir
nema klósettið sem ètur skít
og spýtan sem til einskis er nýt
nema'að til'að sparka í.
Þá sagði klósettið:
"Èg hef ekkert nema saur ètið"
og spýtan svaraði:
"Viltu bit"?
og rètti fram smárètti,
nefið uppá bretti
og söng stefið við Húsið á Slèttunni.
Búsið í flèttunni.
Svo fóru þau í sleik.
Hundur undir stýri,
Sogamýri.
Að eilífu, Salem.
Lífsviljinn
èg reyki sígarettur
og drekk bjór
alla daga
allan daginn
því mèr finnst
ekkert rómantískara
en að deyja
hægt og rólega
frá þessum annars
svo sjúka heimi
þar sem skyndibiti
er sjálfsagðari en
maturinn hennar mömmu
og drekk bjór
alla daga
allan daginn
því mèr finnst
ekkert rómantískara
en að deyja
hægt og rólega
frá þessum annars
svo sjúka heimi
þar sem skyndibiti
er sjálfsagðari en
maturinn hennar mömmu
Laugardagur
Laugardagur í dag.
Þá skal skúrað og sett í þvottavèl.
Kannski èg vaski upp líka?
Svo er það einn kaldur.
Kannski èg panti pizzu líka?
En bara kannski,
þarf að passa uppá línurnar.
Set stíflueyðir á innkaupalistann.
Svo hengi èg upp þvottinn.
Gott er að láta hann hanga yfir nótt,
kemur svo frísk lykt.
Þá skal skúrað og sett í þvottavèl.
Kannski èg vaski upp líka?
Svo er það einn kaldur.
Kannski èg panti pizzu líka?
En bara kannski,
þarf að passa uppá línurnar.
Set stíflueyðir á innkaupalistann.
Svo hengi èg upp þvottinn.
Gott er að láta hann hanga yfir nótt,
kemur svo frísk lykt.
mánudagur, 12. desember 2016
Þrítugasti marz, tvöþúsundogsextán - og lengra nær ellefta september þess sama árs. (Samantekt óflokkaðra skrifa og pára af hinum og þessum blaðsíðum 'dagbókar')
Óstorknað leður;
skemmtunin skeður í miðri leti.
Hvað er óstyrkleiki annars
annað en blekking?
Kannski afsökun fyrir raga nálgun?
Hver veit..?
En það sem að skiptir máli, er að reyna.
Það eru allir að reyna - reyna sitt...
reyna að vera til.
Og hvað er það annars,
'að vera til'?
- Það er að reyna!
vita ekki betur en giska samt.
Þannig varð jú tíminn til
og hann reyndi ekki einu sinni,
hann bara svaraði sínu eigin kalli
með sínum rétta rómi,
án áreynslu,
en í rauninni var það raunin við að reyna
sem síðan olli því að hann vildi öllu gleyma...
---
Ólykt af óþvegnum skíðafatnaði,
barn að grenja súrefni - allir hressir.
Þetta er reyklaust flug, allt á frönsku.
Mig hungrar í kartöflur í brúnni sósu
og gulrætur,
skaðar ekki ef það fylgdi hálf hæna með
- það líður ekki korter
og ég vildi að ég ætti hænsnabú.
Því ég er bóndi, fæddur ræktari,
lífs-upptrekkjari, græðari,
jarðefna forritari foldarinnar,
meitlari moldarinnar;
lífskraftur hugans hallast til þess
að hefja'upp allegoríu náttúrunnar
- einskis og alls í og með öllu.
Mhm og aha...
"Tada"!
---
Á meðan, ein flugan suðar í annari,
bara til að suða svo hringurinn gangi heild sína til fullkomnunar,
og þá gengur einn vísir hraðar yfir annan
og svo hinn og annan
til að réttlæta erfiðið
- hringrásin, hrinrásin!
Allt dettur í dúnalogn
og á meðan verður allt að engu í þögninni.
Rétthentur réttlátari;
býflugan og blómið...
Þar á eftir frjóvgar hún næsta vegfaranda, vegsíðu-standara.
Þann sem 'er-ann'.
Allt er gott og gaman.
Leikrit í framan.
---
Eitt er dregið af öðru,
blóðheit tunga,
lyganöðrur svitnandi tárum
dáina barna á pappírum.
Smituð, sýkt
inn að flóknustu gerðum tauganna;
atómum frumnanna.
Lygin er heitari en Hiroshima
rétt eftir hálf átta.
Samt eru allir tilbúnir til að gleyp'ana,
ótuggða - bara svarta og sykurlausa.
Og svo er veggurinn skallaður aptur,
með púðursykri og rjóma.
Svo aptur og aptur, og aptur
þar til ennið brotnar inn
og færir yfir höfuðið
gleymskuna svo eftirsótta.
En ætli menn hafi ekki mismunandi leiðir til túlkunar hvað það varðar
útaf fyrir sig og svo annað fyrir aðra í tilfellum annara..?
Höfuð, herðar, hné og tær.
Tvöþúsund kall fyrir þær
en á tilboði sem rann út í gær...
Glært glerið sýnir
(þeim sem vilja)
regnbogann - en heldur honum í pant:
'Aðeins til útleigu'.
Menn eru ekki lengur náttúran,
heldur bleyður
- "yes please" -
sálarlaus vélmenni.
Stýrt af harðri hendi
heimsku plasmasjónvarpsins,
tengt gömlum afruglara.
Það verður ekki ruglaðra.
En það er sama,
aftur á bak og áfram,
til hliðar meira'ð segja
- hliðar saman hliðar
til hliða allra hliða -
því ekkert getur orðið heilt
nemað því sé fyrst sundrað,
rifið í tætlur og "bamm"!
Splundrað,
skemmilagt til nýbyggingar.
---
Klukkan var stillt á mér óþekktan tíma
og þessvegna vaknaði fólkið mitt á hárréttri stund
- algleymi á gandreiði.
Allt til einskis...
en mann dreymir,
mann dreymir,
mann dreymir...
Ljósglitrunni er stjórnað af nóttinni,
og öfugt,
og jafnt á milli alls og einskis.
Án hvors annars hefði hvorugt orðið til
- þetta er sjálfuppgötvuð heimspeki;
sín eigin kennslustund, messa og teiti.
Múraður sementsveggur leysis aptur upp í vatninu.
Nákvæmlega það sem allt óskar sér hið innra -
bara'ð fá að vera sín eigin tilvera
til að vera;
vera til
að
vera til.
Jamm og jæja.
Hér er mismunun manna ekki í boði,
bara uppfundin og ímynduð staðreynd sem er
og svo til búin að hún verði tilbúin þegar allt er búið
- prúðbúið svo hægt sé að búa allt til aptur
allt upp á nýtt og svo aptur og svo búið.
Aptur og enn.
Enturtekning, ég veit -
og hér kemur hún aptur,
og síðan aptur.
Aptur á bak - hnúabrak -
og hryggurinn syngur svo bassann.
---
Klukkutíminn kostar hér eitt stykki fjólubláann,
einn nýfermdann og ferskann
- hálftíminn er frír ef þú kannt Magarena,
skref fyrir fokkin skref,
þú ónýta þjóð - kanamella.
Lærðu að skammast þín og vertu nú
einu sinni, svona undir hið síðasta
fyrirmynd hinna komandi afsprengja
efnis þíns og anda.
Láttu af hórdómi þinnar ramm-skökku blikkdósar-myndar,
þitt dældaða áldrósakjólaskart er meingallað ofstopa ljóða-lakk.
Ímyndun.
Allt.
Og ekki.
Byrjunin er hér og í sjálfu sér um leið sinn eiginn endir;
flauelsmyndir krákukrunka og eftirherma
í fullkominni grind efnisleysunnar...
"eters" - hins heilaga anda.
Það blanda allir landa upp til Stranda
og alla leið niðr'í Úganda.
Í vímu finnur fólkið andann.
Helelúja og svei'attan.
Ég fæ vitneskju minnar meðvitundar
að neðan og að handan.
Þú líka.
Allir.
Þannig er það.
Bújaka!
En gleymum ekki að segja 'takk'.
'Takk fyrir allt'.
...takk.
---
Línudans,
eurotrans,
Óli motha'fuckin skans
- með glans.
Davíð Oddsson,
sveppatripp,
stopp
-og að lokum-
stanz og grams.
Sjúddann.
Dorit Músæjef andspænis Búdda.
Lífið er lag, með Sálinni.
Sódóma og skuggar.
Ljósgeislar, frá himni.
Lokið mig inni!
Hver er annars ekki bófi og krimmi?
Bogin nál og slitinn tvinni.
Auddi&Sveppi, Jói&Simmi.
Við búum öll á opnum kleppi.
Eða ekki.
Og þó.
Gling gling og fokkin gló.
Fagur fiskur í sjó
og hvítir sandar.
Vanda, vanda!
- gætið ykkar handa.
Allir englar þurfa fjanda
til að vera til.
Punktur, punktur,
komma - bil.
Næstum því
og hér um bil.
Frá og til,
ég veit hvað ég vil.
Það er ágætt,
einfalt og sérstætt,
þó snúið og margþætt -
hinn flókni einfaldleiki.
Eiki bleiki.
Húsafellsætt.
Allt sem var tætt
er aptur mér bætt.
Glötun og gróði.
Elsku systir,
elsku bróðir...
Ugla sat á kvisti.
Og dó. Fó-sjó.
Allt gengur í hringi;
lifandi spegilmyndir.
Á móti straumnum syndi,
kannski,
en er þó einsog skáti,
ávalt viðbúinn -
ef það er búið til
og tilbúið
rökum og réttsýni.
Stjarneðlisfræðingur,
eða þú veist,
við sem vitum - vitum.
Og þessvegna erum.
Því við reynum,
reynum okkar besta.
Lífið maður -
lífið...
---
Ást er allt.
Sérstaklega eptir sex bjóra á barnum - allir sáttir.
'Öl er innri maður'
og allt annað er á endanum endemis þvaður,
ef þú kýst að ekki viðurkenna endanlega þraut
þinnar endalausu innri og eigin brautar
(það sem telst til þess að teljast maður)
karl eða kona eða hvorki né -
'allt'er ekki til...
'Lífið er erfitt' og skilgreiningin,
ofan á allt,
ennþá erfiðari ef út í hana er farið.
Gott er að gleyma sér í sól og sumar yl,
en mun betra er að verða úti í frostinu.
Þá fyrst skilur maðurinn sína eigin vitund
og hvað tilveran snýst um.
Það held ég og hallast á að nema,
þó ég geti með engu móti útskýrt það nánar...
ég er ég og þú ert þú
- hver?
Tangó og tvisst,
lúdó og risk.
Einmitt
og shit,
ég fraus í sporinu,
týndi orðinu.
Veit hvorki nú né þá,
þegar eða hvenær
- í dag eða gær
eða hvorugt?
Mögulega,
nema á morgun.
Ég drekki mínum sorgum
í botnlausu horni hamingjunnar!
Og syngjum því nú saman:
'Ég er réttur maður, á réttum tíma og í hárréttu húsi'
- þar sem nóg er af glaumi og ókeypis búsi;
þar sem ríkir rónar ráða ríkjum,
þar sem enginn trúir ýkjum,
heldur lifir fólk í og fyrir orðin réttu,
fólk úr öllum stéttum
- ein heild þar sem köllun hvers og eins
hljómar eins,
þó hver fyrir sig
sín eigin einstaka
sinfóníska harmonía
í barnslegri blindni.
---
Blaðsíða fjörtíuogtvö:
Ég hef gengið í hringi alltof lengi
svo ég settist lúinn á bekki,
með stirða strengi
og þar vonaði ég að aflausn einhvern tímann fengi.
Hef lútað fyrir fáu í veruleikanum gráum
en því sem ég hef hatt minn niður fyrir tekið
hefur allt til baka á hol mig rekið.
Traust var gefið, helst of mikið,
því iðulega hef ég endað svikinn
og fyrir vikið hefur millibilið því aukist
milli stoðanna sem halda uppi stöllum skoðana
á völlum eigin hugsana og ályktana
til allra boðanna og bannanna
frá ytra samfélagi mannanna
sem eru mér í rúmi og tíma
samferða á vegum vorra fyrrum forfeðra,
tilbúnum fyrir og handa framtíðar kynslóðir
eptir kynslóðir annara kynslóða
- fyrir komandi kynslóðir kynlegra slóða kynslóða
genafræðilegra kóða og glóða erfða frumefnanna
frá byrjun til þess enda sem enn sér ekki fyrir enda á
- nei eða já -
lítið! og þér munið sjá!
Það geri ég, eða jah sko, ég reyni,
að fá þá sýn inní anga þess alls sem ég lifi í og hrærist,
þar sem ég anda minn efli og næri,
í líkama mínum lánuðum frá bankanum sem stýrir
gengi, þenslu og vöxtum efnahagsstefnu lífsins.
En allt fer eptir veðri og vindáttum,
hvernig árfarvegirnir liggja í grófum dráttum.
Línulestur úr lófum.
Framtíðin er sú fortíð sem við grófum
í óbyggðum og týndum móum fjallstoppa hvítra skýjanna,
sem tróna á himni þess gamla og nýja.
---
Bragðbætt tilveran,
grænn hlunkur
og tilbeiðsla bragðlaukanna
til hindurvitna skugga tannanna,
sem lúra í skúmaskotum allra kima
og króka og spá og sig spóka.
KókaLóka -
án þess að hvorki vaka né sofa.
Þetta er eins svalandi og appelsín í glerflösku,
með lakkrísröri og sígó á eptir,
alsæla í frímó,
fullt af fjöri og rívó,
nei djók!
- við notum ekki læknadóp -
við brýnum blöð og spjót
fyrir Ragnarök og heilög jól.
Síðan skein sól...
Helgi Bjöss og sveitaball í ziplock-poka;
sterkir molar og betri stofan.
Deyfilyf að ofan.
Orga og borga.
Orga aptur og borga meira,
því úrvalið er endalaust
og ennþá meira -
'meir'í dag en í gær'.
Höfuð, herðar, hné og tær.
Ég er svo skýr og skær;
kristal-tær,
með kristal tær
og tungur tvær
en samt dýrlingur
með fima fingur,
heilan tug
og ráfandi hug
sem ræður þeirra hreyfingum...
Tvo þeirra met ég öðrum meira og mest,
sinnhvorn sprottinn af sinnhvorum lófa sinnhvorrar handar,
lífsins sönnu boðin bera þeir tveir saman best.
Löngutengur eru lífsins fengur -
'fokkið ykkur'!
Já ég sagði það,
skilaboðin eru skýr og þessi:
'Haldið kjafti og étið skít með skeið og gaffli!'
Það er hinn sanni kærleikur -
hinn allra hæsti og hreinasti kærleikur.
Svo ég segji að lokum,
frá botni míns hjarta,
aptur:
'Fokkið ykkur og eigið framtíð bjarta'
---
- Ástir og virðingar!
Ykkar,
Jón 'mothafuckin' Ingvar
skemmtunin skeður í miðri leti.
Hvað er óstyrkleiki annars
annað en blekking?
Kannski afsökun fyrir raga nálgun?
Hver veit..?
En það sem að skiptir máli, er að reyna.
Það eru allir að reyna - reyna sitt...
reyna að vera til.
Og hvað er það annars,
'að vera til'?
- Það er að reyna!
vita ekki betur en giska samt.
Þannig varð jú tíminn til
og hann reyndi ekki einu sinni,
hann bara svaraði sínu eigin kalli
með sínum rétta rómi,
án áreynslu,
en í rauninni var það raunin við að reyna
sem síðan olli því að hann vildi öllu gleyma...
---
Ólykt af óþvegnum skíðafatnaði,
barn að grenja súrefni - allir hressir.
Þetta er reyklaust flug, allt á frönsku.
Mig hungrar í kartöflur í brúnni sósu
og gulrætur,
skaðar ekki ef það fylgdi hálf hæna með
- það líður ekki korter
og ég vildi að ég ætti hænsnabú.
Því ég er bóndi, fæddur ræktari,
lífs-upptrekkjari, græðari,
jarðefna forritari foldarinnar,
meitlari moldarinnar;
lífskraftur hugans hallast til þess
að hefja'upp allegoríu náttúrunnar
- einskis og alls í og með öllu.
Mhm og aha...
"Tada"!
---
Á meðan, ein flugan suðar í annari,
bara til að suða svo hringurinn gangi heild sína til fullkomnunar,
og þá gengur einn vísir hraðar yfir annan
og svo hinn og annan
til að réttlæta erfiðið
- hringrásin, hrinrásin!
Allt dettur í dúnalogn
og á meðan verður allt að engu í þögninni.
Rétthentur réttlátari;
býflugan og blómið...
Þar á eftir frjóvgar hún næsta vegfaranda, vegsíðu-standara.
Þann sem 'er-ann'.
Allt er gott og gaman.
Leikrit í framan.
---
Eitt er dregið af öðru,
blóðheit tunga,
lyganöðrur svitnandi tárum
dáina barna á pappírum.
Smituð, sýkt
inn að flóknustu gerðum tauganna;
atómum frumnanna.
Lygin er heitari en Hiroshima
rétt eftir hálf átta.
Samt eru allir tilbúnir til að gleyp'ana,
ótuggða - bara svarta og sykurlausa.
Og svo er veggurinn skallaður aptur,
með púðursykri og rjóma.
Svo aptur og aptur, og aptur
þar til ennið brotnar inn
og færir yfir höfuðið
gleymskuna svo eftirsótta.
En ætli menn hafi ekki mismunandi leiðir til túlkunar hvað það varðar
útaf fyrir sig og svo annað fyrir aðra í tilfellum annara..?
Höfuð, herðar, hné og tær.
Tvöþúsund kall fyrir þær
en á tilboði sem rann út í gær...
Glært glerið sýnir
(þeim sem vilja)
regnbogann - en heldur honum í pant:
'Aðeins til útleigu'.
Menn eru ekki lengur náttúran,
heldur bleyður
- "yes please" -
sálarlaus vélmenni.
Stýrt af harðri hendi
heimsku plasmasjónvarpsins,
tengt gömlum afruglara.
Það verður ekki ruglaðra.
En það er sama,
aftur á bak og áfram,
til hliðar meira'ð segja
- hliðar saman hliðar
til hliða allra hliða -
því ekkert getur orðið heilt
nemað því sé fyrst sundrað,
rifið í tætlur og "bamm"!
Splundrað,
skemmilagt til nýbyggingar.
---
Klukkan var stillt á mér óþekktan tíma
og þessvegna vaknaði fólkið mitt á hárréttri stund
- algleymi á gandreiði.
Allt til einskis...
en mann dreymir,
mann dreymir,
mann dreymir...
Ljósglitrunni er stjórnað af nóttinni,
og öfugt,
og jafnt á milli alls og einskis.
Án hvors annars hefði hvorugt orðið til
- þetta er sjálfuppgötvuð heimspeki;
sín eigin kennslustund, messa og teiti.
Múraður sementsveggur leysis aptur upp í vatninu.
Nákvæmlega það sem allt óskar sér hið innra -
bara'ð fá að vera sín eigin tilvera
til að vera;
vera til
að
vera til.
Jamm og jæja.
Hér er mismunun manna ekki í boði,
bara uppfundin og ímynduð staðreynd sem er
og svo til búin að hún verði tilbúin þegar allt er búið
- prúðbúið svo hægt sé að búa allt til aptur
allt upp á nýtt og svo aptur og svo búið.
Aptur og enn.
Enturtekning, ég veit -
og hér kemur hún aptur,
og síðan aptur.
Aptur á bak - hnúabrak -
og hryggurinn syngur svo bassann.
---
Klukkutíminn kostar hér eitt stykki fjólubláann,
einn nýfermdann og ferskann
- hálftíminn er frír ef þú kannt Magarena,
skref fyrir fokkin skref,
þú ónýta þjóð - kanamella.
Lærðu að skammast þín og vertu nú
einu sinni, svona undir hið síðasta
fyrirmynd hinna komandi afsprengja
efnis þíns og anda.
Láttu af hórdómi þinnar ramm-skökku blikkdósar-myndar,
þitt dældaða áldrósakjólaskart er meingallað ofstopa ljóða-lakk.
Ímyndun.
Allt.
Og ekki.
Byrjunin er hér og í sjálfu sér um leið sinn eiginn endir;
flauelsmyndir krákukrunka og eftirherma
í fullkominni grind efnisleysunnar...
"eters" - hins heilaga anda.
Það blanda allir landa upp til Stranda
og alla leið niðr'í Úganda.
Í vímu finnur fólkið andann.
Helelúja og svei'attan.
Ég fæ vitneskju minnar meðvitundar
að neðan og að handan.
Þú líka.
Allir.
Þannig er það.
Bújaka!
En gleymum ekki að segja 'takk'.
'Takk fyrir allt'.
...takk.
---
Línudans,
eurotrans,
Óli motha'fuckin skans
- með glans.
Davíð Oddsson,
sveppatripp,
stopp
-og að lokum-
stanz og grams.
Sjúddann.
Dorit Músæjef andspænis Búdda.
Lífið er lag, með Sálinni.
Sódóma og skuggar.
Ljósgeislar, frá himni.
Lokið mig inni!
Hver er annars ekki bófi og krimmi?
Bogin nál og slitinn tvinni.
Auddi&Sveppi, Jói&Simmi.
Við búum öll á opnum kleppi.
Eða ekki.
Og þó.
Gling gling og fokkin gló.
Fagur fiskur í sjó
og hvítir sandar.
Vanda, vanda!
- gætið ykkar handa.
Allir englar þurfa fjanda
til að vera til.
Punktur, punktur,
komma - bil.
Næstum því
og hér um bil.
Frá og til,
ég veit hvað ég vil.
Það er ágætt,
einfalt og sérstætt,
þó snúið og margþætt -
hinn flókni einfaldleiki.
Eiki bleiki.
Húsafellsætt.
Allt sem var tætt
er aptur mér bætt.
Glötun og gróði.
Elsku systir,
elsku bróðir...
Ugla sat á kvisti.
Og dó. Fó-sjó.
Allt gengur í hringi;
lifandi spegilmyndir.
Á móti straumnum syndi,
kannski,
en er þó einsog skáti,
ávalt viðbúinn -
ef það er búið til
og tilbúið
rökum og réttsýni.
Stjarneðlisfræðingur,
eða þú veist,
við sem vitum - vitum.
Og þessvegna erum.
Því við reynum,
reynum okkar besta.
Lífið maður -
lífið...
---
Ást er allt.
Sérstaklega eptir sex bjóra á barnum - allir sáttir.
'Öl er innri maður'
og allt annað er á endanum endemis þvaður,
ef þú kýst að ekki viðurkenna endanlega þraut
þinnar endalausu innri og eigin brautar
(það sem telst til þess að teljast maður)
karl eða kona eða hvorki né -
'allt'er ekki til...
'Lífið er erfitt' og skilgreiningin,
ofan á allt,
ennþá erfiðari ef út í hana er farið.
Gott er að gleyma sér í sól og sumar yl,
en mun betra er að verða úti í frostinu.
Þá fyrst skilur maðurinn sína eigin vitund
og hvað tilveran snýst um.
Það held ég og hallast á að nema,
þó ég geti með engu móti útskýrt það nánar...
ég er ég og þú ert þú
- hver?
Tangó og tvisst,
lúdó og risk.
Einmitt
og shit,
ég fraus í sporinu,
týndi orðinu.
Veit hvorki nú né þá,
þegar eða hvenær
- í dag eða gær
eða hvorugt?
Mögulega,
nema á morgun.
Ég drekki mínum sorgum
í botnlausu horni hamingjunnar!
Og syngjum því nú saman:
'Ég er réttur maður, á réttum tíma og í hárréttu húsi'
- þar sem nóg er af glaumi og ókeypis búsi;
þar sem ríkir rónar ráða ríkjum,
þar sem enginn trúir ýkjum,
heldur lifir fólk í og fyrir orðin réttu,
fólk úr öllum stéttum
- ein heild þar sem köllun hvers og eins
hljómar eins,
þó hver fyrir sig
sín eigin einstaka
sinfóníska harmonía
í barnslegri blindni.
---
Blaðsíða fjörtíuogtvö:
Ég hef gengið í hringi alltof lengi
svo ég settist lúinn á bekki,
með stirða strengi
og þar vonaði ég að aflausn einhvern tímann fengi.
Hef lútað fyrir fáu í veruleikanum gráum
en því sem ég hef hatt minn niður fyrir tekið
hefur allt til baka á hol mig rekið.
Traust var gefið, helst of mikið,
því iðulega hef ég endað svikinn
og fyrir vikið hefur millibilið því aukist
milli stoðanna sem halda uppi stöllum skoðana
á völlum eigin hugsana og ályktana
til allra boðanna og bannanna
frá ytra samfélagi mannanna
sem eru mér í rúmi og tíma
samferða á vegum vorra fyrrum forfeðra,
tilbúnum fyrir og handa framtíðar kynslóðir
eptir kynslóðir annara kynslóða
- fyrir komandi kynslóðir kynlegra slóða kynslóða
genafræðilegra kóða og glóða erfða frumefnanna
frá byrjun til þess enda sem enn sér ekki fyrir enda á
- nei eða já -
lítið! og þér munið sjá!
Það geri ég, eða jah sko, ég reyni,
að fá þá sýn inní anga þess alls sem ég lifi í og hrærist,
þar sem ég anda minn efli og næri,
í líkama mínum lánuðum frá bankanum sem stýrir
gengi, þenslu og vöxtum efnahagsstefnu lífsins.
En allt fer eptir veðri og vindáttum,
hvernig árfarvegirnir liggja í grófum dráttum.
Línulestur úr lófum.
Framtíðin er sú fortíð sem við grófum
í óbyggðum og týndum móum fjallstoppa hvítra skýjanna,
sem tróna á himni þess gamla og nýja.
---
Bragðbætt tilveran,
grænn hlunkur
og tilbeiðsla bragðlaukanna
til hindurvitna skugga tannanna,
sem lúra í skúmaskotum allra kima
og króka og spá og sig spóka.
KókaLóka -
án þess að hvorki vaka né sofa.
Þetta er eins svalandi og appelsín í glerflösku,
með lakkrísröri og sígó á eptir,
alsæla í frímó,
fullt af fjöri og rívó,
nei djók!
- við notum ekki læknadóp -
við brýnum blöð og spjót
fyrir Ragnarök og heilög jól.
Síðan skein sól...
Helgi Bjöss og sveitaball í ziplock-poka;
sterkir molar og betri stofan.
Deyfilyf að ofan.
Orga og borga.
Orga aptur og borga meira,
því úrvalið er endalaust
og ennþá meira -
'meir'í dag en í gær'.
Höfuð, herðar, hné og tær.
Ég er svo skýr og skær;
kristal-tær,
með kristal tær
og tungur tvær
en samt dýrlingur
með fima fingur,
heilan tug
og ráfandi hug
sem ræður þeirra hreyfingum...
Tvo þeirra met ég öðrum meira og mest,
sinnhvorn sprottinn af sinnhvorum lófa sinnhvorrar handar,
lífsins sönnu boðin bera þeir tveir saman best.
Löngutengur eru lífsins fengur -
'fokkið ykkur'!
Já ég sagði það,
skilaboðin eru skýr og þessi:
'Haldið kjafti og étið skít með skeið og gaffli!'
Það er hinn sanni kærleikur -
hinn allra hæsti og hreinasti kærleikur.
Svo ég segji að lokum,
frá botni míns hjarta,
aptur:
'Fokkið ykkur og eigið framtíð bjarta'
---
- Ástir og virðingar!
Ykkar,
Jón 'mothafuckin' Ingvar
sunnudagur, 1. maí 2016
Hamingja án krítarkorts
Grjóthaltu kjafti,
þú veist hvað það er gott.
Èg er búinn að finna hina fullkomnu formúlu að ferskleika sálarinnar:
rándýr vímuefni,
slagsmál,
ölæði
og rökræður um frið.
Allir kjálkar á ferð og flugi,
hornaugu úr horni þeirra blindu.
Bros einkenna yfirlitin og brárnar.
Enginn er hèr svikinn.
Jóna, eðal kók og allt svo gott á litinn.
Lætur vel í eyrum.
I dig'it.
Hin mýksta rúmdýna
er ekki endilega sú þægilegasta,
til lengri legu allavega.
Hentar helst til samfara frekar en svefns.
Fólk langar yfir höfuð ýmist;
helst hvoru tveggja.
En það er ekki hægt að gera allt í einu.
Mikil er yfir þèr fegurðin og þegiðu.
Skilurðu?
Ofvirkir alkóhólistar með rándýr tóneyru
gera sèr upp runur af afsökunum,
útskýringum og rèttlætingum
til þess að vera aldrei,
ekki í hálft vakandi andartak,
edrú - ekki "ekki drekkandi" bjór.
Þeir kalla sig starfandi tónlistamenn og atvinnu flytjendur.
En èg veit að þeir vita, einsog èg,
og vita að èg veit að þeir vita að aðrir
(sem vilja vita og reyna, strita)
vita einsog èg og þeir vita,
að menn skreyta sig ávalt skrautlegustu fjöðrunum sem í boði eru,
ef þeir geta.
Èg geri það líka.
Alveg einsog allir aðrir.
Allt er snilld sem tengir mann að innan,
sem sameinar hug og hjarta.
Þakklæti mitt er margfalt og svo margfalt
að mig skortir val orða.
Írskur bar. Austurstræti.
Bjórinn álíka dýr og kókaín.
The Dubliners undir nálinni.
Èg er eini innfæddi túristin.
Èg staldra við af tilviljun,
èg staldra fyrir brjóstin...
Guð er greinilega til.
Sitjandinn svo fullkominn að manni svíður í augun
og eflist allur lífskrafturinn
til líkamlegrar fórnar til náttúrunnar.
Elska og upplifa.
Lífið maður - lífið!
En já, aftur - heilagur kaleikur og Kormákur...
Allt saman hefur sín einstöku áhrif
- og èg er seldur.
Lífið í sínum öllu ljósum.
Ást og virðing til þeirra sem skilja.
Veröldin öll svo stinn
og mjúk í senn.
Ögrandi og róandi...
Fullkomnun.
Èg þarf ekkert meira.
Ekkert meira en himneska mýkt veruleikans:
Yndislegur er'ann.
Fegurðin er í augum allra.
Sumir sjá eitthvað,
aðrir annað.
Gott og blessað,
hollt og heilagt til umhugsunar.
Án gríns.
---
Þegar dagurinn er að kveldi kominn,
sjáum við að lífið, í heild sinni,
hefur aðeins einu að þakka í hið heila;
aðeins það getur sèð fyrir og bjargað lífi
einsog það gerir óteljandi sinnum í hverju andartaki sem verður til og uppfyllist meðal manna:
Ljós.
Kæra veröld, ástkæra tilvera og allt þar á milli,
èg gæti haldið áfram til næstu aldamóta
og ennþá lengra!
Ég vill einungis að það komi fram.
Komi fram sem skýrast,
með fyllstu virðingu og dýpstu aðdáun
ofan á hið ólýsanlega þakklæti
sem èg finn fyrir og ber í brjósti!
Losti minn er gagnvart lífinu,
girnd mín er guðdómur,
hold mitt er jörðin
og hugurinn andinn í skýjunum...
Góðar stundir og passið ykkur á bílunum.
þú veist hvað það er gott.
Èg er búinn að finna hina fullkomnu formúlu að ferskleika sálarinnar:
rándýr vímuefni,
slagsmál,
ölæði
og rökræður um frið.
Allir kjálkar á ferð og flugi,
hornaugu úr horni þeirra blindu.
Bros einkenna yfirlitin og brárnar.
Enginn er hèr svikinn.
Jóna, eðal kók og allt svo gott á litinn.
Lætur vel í eyrum.
I dig'it.
Hin mýksta rúmdýna
er ekki endilega sú þægilegasta,
til lengri legu allavega.
Hentar helst til samfara frekar en svefns.
Fólk langar yfir höfuð ýmist;
helst hvoru tveggja.
En það er ekki hægt að gera allt í einu.
Mikil er yfir þèr fegurðin og þegiðu.
Skilurðu?
Ofvirkir alkóhólistar með rándýr tóneyru
gera sèr upp runur af afsökunum,
útskýringum og rèttlætingum
til þess að vera aldrei,
ekki í hálft vakandi andartak,
edrú - ekki "ekki drekkandi" bjór.
Þeir kalla sig starfandi tónlistamenn og atvinnu flytjendur.
En èg veit að þeir vita, einsog èg,
og vita að èg veit að þeir vita að aðrir
(sem vilja vita og reyna, strita)
vita einsog èg og þeir vita,
að menn skreyta sig ávalt skrautlegustu fjöðrunum sem í boði eru,
ef þeir geta.
Èg geri það líka.
Alveg einsog allir aðrir.
Allt er snilld sem tengir mann að innan,
sem sameinar hug og hjarta.
Þakklæti mitt er margfalt og svo margfalt
að mig skortir val orða.
Írskur bar. Austurstræti.
Bjórinn álíka dýr og kókaín.
The Dubliners undir nálinni.
Èg er eini innfæddi túristin.
Èg staldra við af tilviljun,
èg staldra fyrir brjóstin...
Guð er greinilega til.
Sitjandinn svo fullkominn að manni svíður í augun
og eflist allur lífskrafturinn
til líkamlegrar fórnar til náttúrunnar.
Elska og upplifa.
Lífið maður - lífið!
En já, aftur - heilagur kaleikur og Kormákur...
Allt saman hefur sín einstöku áhrif
- og èg er seldur.
Lífið í sínum öllu ljósum.
Ást og virðing til þeirra sem skilja.
Veröldin öll svo stinn
og mjúk í senn.
Ögrandi og róandi...
Fullkomnun.
Èg þarf ekkert meira.
Ekkert meira en himneska mýkt veruleikans:
Yndislegur er'ann.
Fegurðin er í augum allra.
Sumir sjá eitthvað,
aðrir annað.
Gott og blessað,
hollt og heilagt til umhugsunar.
Án gríns.
---
Þegar dagurinn er að kveldi kominn,
sjáum við að lífið, í heild sinni,
hefur aðeins einu að þakka í hið heila;
aðeins það getur sèð fyrir og bjargað lífi
einsog það gerir óteljandi sinnum í hverju andartaki sem verður til og uppfyllist meðal manna:
Ljós.
Kæra veröld, ástkæra tilvera og allt þar á milli,
èg gæti haldið áfram til næstu aldamóta
og ennþá lengra!
Ég vill einungis að það komi fram.
Komi fram sem skýrast,
með fyllstu virðingu og dýpstu aðdáun
ofan á hið ólýsanlega þakklæti
sem èg finn fyrir og ber í brjósti!
Losti minn er gagnvart lífinu,
girnd mín er guðdómur,
hold mitt er jörðin
og hugurinn andinn í skýjunum...
Góðar stundir og passið ykkur á bílunum.
föstudagur, 29. apríl 2016
Ferðalag um forskeyti framtíðar
Mars, man ekki hvenær.
Á afturfótunum geng èg um bert svellið sem byrjaði á sama stað og èg endaði biðstöðu mína, og mun enda þar sem èg byrjaði stöðnunina til þroska.
Galdurinn er falinn í öklunum, hversu langt kemst maður á einum fæti.
Èg hugsa í stærðfræði, drep allan skæting þegar èg sè hann, jarð'ann með remúlaði og ufsa. Þigg ekki unnið sláturhúsagólfsuppsóp í fölsuðum kindagörnum.
SS. Já og eða Goði.
Slátrarar sannleikans.
12. apríl, èg er illa lyktandi. Ekkert nýtt.
Er í flugvèl yfir Frakklandi og unglingarnir sem deila með mèr sæti flissa þegar èg rek óvart við. Ó hvað við erum öll mennsk...
Og ó hvað èg þakka fyrir það.
Flugþjónarnir eru meðvitaðir um hversu álit farþeganna hlítur að snúast um opnu buxnakaufina,
meiraðsegja þernan gaf stóru brjóstunum auga...
Unglingarnir hlægja og kyssast, èg missti af því. Þau eru heppin. Hvað varð um Garp og Leppin?
Við erum svo gjörn til að gleyma, öll ljós kveikt en engin heima. Tilveran er til þess að dreyma og reyna.
Keypti mèr tvo bjóra, meig, skar upp kátínu unglinganna með svita. Èg held að allir sèu sáttir... Þau hlægja og kúra.
Èg opna aðra dós og skrifa. Fyrir sunnudag verð èg edrú.
Eða ekki.
Sama gamla sagan, 111 fellin.
Dagarnir falla í sama formið, sömu rútínulúppuna og var.
Það er erfiðara að breytast en maður heldur í gamla umhverfinu.
En nú veit maður meira en áður... Og betur.
27. apríl. Vaknaður aftur.
Èg sè fjöll. Halló fjöll, halló. Gaman að sjá ykkur. Bless, bæ.
Nú fer èg upp brekkuna, stoppa tvisvar og stíg svo til hliðar. Sólin stelst á milli skýjanna stilltra og vindurinn hvíslar:
"góða kvöldið, hljóðið dó - andaðist. En það er allt í góðu, allt í lagi - ljóðið lifnaði".
Apríl endar á upphrópunarmerki. Vaxtarverkir. Klukk, klukk og klækir.
Allt er svo gott að ekkert bætir.
Èg á bráðum afmæli og Jesú mætir.
Frestunarblæti ómagans.
Best fyrir þann fimmtánda; opnist hèr.
Á afturfótunum geng èg um bert svellið sem byrjaði á sama stað og èg endaði biðstöðu mína, og mun enda þar sem èg byrjaði stöðnunina til þroska.
Galdurinn er falinn í öklunum, hversu langt kemst maður á einum fæti.
Èg hugsa í stærðfræði, drep allan skæting þegar èg sè hann, jarð'ann með remúlaði og ufsa. Þigg ekki unnið sláturhúsagólfsuppsóp í fölsuðum kindagörnum.
SS. Já og eða Goði.
Slátrarar sannleikans.
12. apríl, èg er illa lyktandi. Ekkert nýtt.
Er í flugvèl yfir Frakklandi og unglingarnir sem deila með mèr sæti flissa þegar èg rek óvart við. Ó hvað við erum öll mennsk...
Og ó hvað èg þakka fyrir það.
Flugþjónarnir eru meðvitaðir um hversu álit farþeganna hlítur að snúast um opnu buxnakaufina,
meiraðsegja þernan gaf stóru brjóstunum auga...
Unglingarnir hlægja og kyssast, èg missti af því. Þau eru heppin. Hvað varð um Garp og Leppin?
Við erum svo gjörn til að gleyma, öll ljós kveikt en engin heima. Tilveran er til þess að dreyma og reyna.
Keypti mèr tvo bjóra, meig, skar upp kátínu unglinganna með svita. Èg held að allir sèu sáttir... Þau hlægja og kúra.
Èg opna aðra dós og skrifa. Fyrir sunnudag verð èg edrú.
Eða ekki.
Sama gamla sagan, 111 fellin.
Dagarnir falla í sama formið, sömu rútínulúppuna og var.
Það er erfiðara að breytast en maður heldur í gamla umhverfinu.
En nú veit maður meira en áður... Og betur.
27. apríl. Vaknaður aftur.
Èg sè fjöll. Halló fjöll, halló. Gaman að sjá ykkur. Bless, bæ.
Nú fer èg upp brekkuna, stoppa tvisvar og stíg svo til hliðar. Sólin stelst á milli skýjanna stilltra og vindurinn hvíslar:
"góða kvöldið, hljóðið dó - andaðist. En það er allt í góðu, allt í lagi - ljóðið lifnaði".
Apríl endar á upphrópunarmerki. Vaxtarverkir. Klukk, klukk og klækir.
Allt er svo gott að ekkert bætir.
Èg á bráðum afmæli og Jesú mætir.
Frestunarblæti ómagans.
Best fyrir þann fimmtánda; opnist hèr.
mánudagur, 19. október 2015
Sjálfstæður sálfræðitími
áfallastreituraskaður
ofvirkur athygglisbrestur
með
geðrofshneigð geðhvörf
hömlulausra hugsana
alkóhólistans
allt í rugli
samt
allt'í'lagi
hipp'og'kúl gæi
með ekkert
nema góðan ásetning
röltandi anandi
andi barnsins
flæktur í flókin
veiðarfæri mannsins
menn þurfa þó ekki
endilega að vera týndir
þó þeir séu staddir úti
á miðju túninu
kannski villast menn bara
og ruglast af ráfi sínu
í lokuðu þröngu rými
stjórnleysisins
ofvirkur athygglisbrestur
með
geðrofshneigð geðhvörf
hömlulausra hugsana
alkóhólistans
allt í rugli
samt
allt'í'lagi
hipp'og'kúl gæi
með ekkert
nema góðan ásetning
röltandi anandi
andi barnsins
flæktur í flókin
veiðarfæri mannsins
menn þurfa þó ekki
endilega að vera týndir
þó þeir séu staddir úti
á miðju túninu
kannski villast menn bara
og ruglast af ráfi sínu
í lokuðu þröngu rými
stjórnleysisins
Labels:
Áfengi,
Fíkn,
Geðveiki,
Lærdómur,
Mannlýsing,
Úrvinnsla,
Vangaveltur,
Vímuefni,
Von
föstudagur, 2. október 2015
Þú finnur það sem þú leitar að ef þú vilt. (BiPolar)
fjaðrirnar
í vindinum fjúka
meðan
systir sólarinnar
drepur tittlinga
grúturinn sèr um restina
biluð ljósapera
í sýndarveruleika
- gjafir guðanna -
tónlist næturinnar leikur um
og í gegnum runnana:
túlkun tilfinninga
flöktandi drauma náttúrunnar
sem sjást í blindi
heyrast í heyrnarleysi
og veikindin
óheft streyma
gegnum naglaför bárujárnanna
á þaki hugans
- andans -
sýktar raunir þess liðna lifna
í hafsjó skopstælinga hugans
og alls sem er virkilega
-
gangandi ryðgud Bónuskerra
misskilin tilvera
(djók)
allt er ljómandi
ólýsanlega æðislegt
einsog
óstöðvandi raðfullnægingar
blátt og bleikt
lifandi skáldsaga
þrískipt alsæla
faðirinn
sonurinn
og hinn
heilagi andi
hugur og sál
saman svífandi
líðandi
inní draumalandið
samt vakandi
og í fullkomlega medvituðu ástandi
depurð ekki til
nè oflæti
bara flöktid
þess á milli
ad vera
og
ekki vera
slètt sama
hljómar kannski furðulega
en èg fíla það...
það er nú það
í vindinum fjúka
meðan
systir sólarinnar
drepur tittlinga
grúturinn sèr um restina
biluð ljósapera
í sýndarveruleika
- gjafir guðanna -
tónlist næturinnar leikur um
og í gegnum runnana:
túlkun tilfinninga
flöktandi drauma náttúrunnar
sem sjást í blindi
heyrast í heyrnarleysi
og veikindin
óheft streyma
gegnum naglaför bárujárnanna
á þaki hugans
- andans -
sýktar raunir þess liðna lifna
í hafsjó skopstælinga hugans
og alls sem er virkilega
-
gangandi ryðgud Bónuskerra
misskilin tilvera
(djók)
allt er ljómandi
ólýsanlega æðislegt
einsog
óstöðvandi raðfullnægingar
blátt og bleikt
lifandi skáldsaga
þrískipt alsæla
faðirinn
sonurinn
og hinn
heilagi andi
hugur og sál
saman svífandi
líðandi
inní draumalandið
samt vakandi
og í fullkomlega medvituðu ástandi
depurð ekki til
nè oflæti
bara flöktid
þess á milli
ad vera
og
ekki vera
slètt sama
hljómar kannski furðulega
en èg fíla það...
það er nú það
og jájá
svei mér þá
bara amen
svei mér þá
bara amen
föstudagur, 19. desember 2014
Stríðið við lífið
Laugaður hef ég og ljóð mín skrifað,
að litbrigðum myndmáls orða miðað.
Í sálinni hef ég magnað upp seiða
og sungið þannig burtu lífsins leiða.
Styrjaldir hef ég hamslaus staðið
og hart stjórnleysið með mér alið.
Ég svifið hef frjáls um sælunnar engi
og spilað mín lög á vímunnar strengi.
Ég drukkið hef vín og ég hef dópað,
hef Díonýsus oftsinnis blótað.
Með Bakkusi hef títt bísað og starfað,
og barist um óður í stríðum geðhvarfa.
Á hugarfluginu langt hef ég farið,
og hratt um flogið upp á æðri staði.
En aldrei ég hef það haft fyrir sið
að hafa'af því unun og staldra þar við.
---
Sný ég því aptur í súru geðveikina
og snaraður fastur er neyddur í leikina.
Það leikrit að þykjast eðlilegur vera
og þjáningu raunveruleikans að bera.
að litbrigðum myndmáls orða miðað.
Í sálinni hef ég magnað upp seiða
og sungið þannig burtu lífsins leiða.
Styrjaldir hef ég hamslaus staðið
og hart stjórnleysið með mér alið.
Ég svifið hef frjáls um sælunnar engi
og spilað mín lög á vímunnar strengi.
Ég drukkið hef vín og ég hef dópað,
hef Díonýsus oftsinnis blótað.
Með Bakkusi hef títt bísað og starfað,
og barist um óður í stríðum geðhvarfa.
Á hugarfluginu langt hef ég farið,
og hratt um flogið upp á æðri staði.
En aldrei ég hef það haft fyrir sið
að hafa'af því unun og staldra þar við.
---
Sný ég því aptur í súru geðveikina
og snaraður fastur er neyddur í leikina.
Það leikrit að þykjast eðlilegur vera
og þjáningu raunveruleikans að bera.
miðvikudagur, 17. desember 2014
Ragnarök
hið græna ljón gleypir sólina
galdurinn skerpir sjónina
fyrrum blóði drifið engi bíður
blómstrunar meðan tíminn líður
dynur frá verkstæði dverga
djúpt neðan úr fjöllum
æsirnir vanina ergja
og espa upp þeirra köllun
eldinn gaf oss Prómóþeus
aldin færði á silfurfati
líf fyrir líf - eilífur Deus -
ljósið gefur svo verði bati
frá rökstólum goðanna geislar
galdurinn æðsti og beislar
efnið, svo fyllist gatið
satúrnus til munns sér leggur
syni sína með bernaise-sósu
tyggur bita fyrir bita og heggur
brotna sólstafi í ljósum
logum, og himininn rifnar...
dætur Óðins blóði drifnar
dólgar viðhafast undir rósum
úr hásætum himnanna kemur
hið algilda lögmál sköpunar
ofið úr þeim einingum þremur
er uppfylla og greiða götuna
vitund upp vinda á gátt
villtum beina í rétta átt
af veginum sem leiðir til glötunar
til þjónustu sagna er tíminn
tilgangurinn í gangverkinu
endalokin hafin í mynd
unna af sjálfu sköpunarverkinu
urið mun allt upp til agna
um aldur og ævi ragna
sólin rís aptur í nýrri merkingu
galdurinn skerpir sjónina
fyrrum blóði drifið engi bíður
blómstrunar meðan tíminn líður
dynur frá verkstæði dverga
djúpt neðan úr fjöllum
æsirnir vanina ergja
og espa upp þeirra köllun
eldinn gaf oss Prómóþeus
aldin færði á silfurfati
líf fyrir líf - eilífur Deus -
ljósið gefur svo verði bati
frá rökstólum goðanna geislar
galdurinn æðsti og beislar
efnið, svo fyllist gatið
satúrnus til munns sér leggur
syni sína með bernaise-sósu
tyggur bita fyrir bita og heggur
brotna sólstafi í ljósum
logum, og himininn rifnar...
dætur Óðins blóði drifnar
dólgar viðhafast undir rósum
úr hásætum himnanna kemur
hið algilda lögmál sköpunar
ofið úr þeim einingum þremur
er uppfylla og greiða götuna
vitund upp vinda á gátt
villtum beina í rétta átt
af veginum sem leiðir til glötunar
til þjónustu sagna er tíminn
tilgangurinn í gangverkinu
endalokin hafin í mynd
unna af sjálfu sköpunarverkinu
urið mun allt upp til agna
um aldur og ævi ragna
sólin rís aptur í nýrri merkingu
föstudagur, 7. nóvember 2014
Afleiðingar ákvarðanna sem speglast í lélegri ljósmynd af dauðanum
sólin er appelsína
sem skín á glötunina
svarthvítt myndbrot
af dauðanum
sem skín á glötunina
svarthvítt myndbrot
af dauðanum
með áróður
á móti lífinu
á móti lífinu
kómískur hryllingur
með dramatísku ívafi
svo er öllum sagt að þegja
og fyrir lygum hneigja
í dáleislu hrakfalla
líðandi stunda
í dáleislu hrakfalla
líðandi stunda
hryllileg dramatík
með þó kómísku ívafi
með þó kómísku ívafi
Labels:
Ádeila,
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Lýsing
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)