Translate

fimmtudagur, 17. október 2013

Raus...

Þér standið höltum fótum
á mörkum tveggja heima,
á þeirri fínu brún
- eða línu -
sem hvílir milli þess
alvarlega raunveruleika
og hinnar barnalegu
ímyndunar tilverunnar.

Þér styðjist við staf
yðar sveltu hæfileika,
sem fyrir hungraðri
áfergju stoltsins
létu yður reika.
Bugaðir af sárum
hins sára sannleika
sem sýndi yður ítarlega
hina sönnu mynd sjálfsins.
Bældur biturleikinn
í brjóstinu sýður
- svíður -
og mun gjósa að lokum
sem og líður - ef óáreittur.

„Verið viðbúin“
gæti ég sagt en litla stoð
myndi það veita til viðsnúnings
ákvarðana örlaganna.
„Fangið ykkar föggur
og flýjið“
                 -Nei...
tilgangslaust og ó- tilrauna vert.

Þolraunin virðist yður of þung
- ofviða.
Vonlaust verður hjálpina
að veita þeim sem upprisið
hafa gegn sínu sanna eðli,
hinu ómótaða innra
með hinu mótaða ytra,
sem í annarlegum tilgangi
matað er af mönnum til manna
- falsað.

Þér reynið sem mest megið
að halda jafnvægi,
en vogarafl samvizkunnar
verður samvizkusamlega
að láta eftir þyngdarlögmáli
gjörðanna.

Aflvana þér eruð, rjúkandi af reiði
og brennandi í brjósti. Sárt svíður
hið særða stolt og það brjálæði
veldur ama þar til líkaminn lamast.

Þér liggið í djúpu dái blekkinga,
trúandi á þá spekinga sem yður
böðuðu upp úr laugum lygarinnar.
En kvíðið eigi kæru kunningjar,
kvíðið eigi! Við öll verðum dæmd
á hinum hinsta degi en skoðanir
skipta þá engu. Það er sá fengur
sem hjartað hefur fram á að bjóða,
óháður áhrifum hins vakandi huga.
Allt til fórnar fyrir eilífa alsælu.

---

Ég vildi aðeins láta yður vita.
Svo, ég óska yður vægðar,
ró og friðar í ólgusjó hinnar
óröklegu hegðunar.

Ég skal senda yður póstkort!
           - Adieux!

Samtal við sandlóur

Sjö litlar sandlóur
sátu'og málin ræddu.
Virtust kátar; vængjaðar,
vínvið saman snæddu.

Ég heldur gerðist hugaður
og hóf mig uppí spjallið.
Þá varð ég miklu vísari
um vinning syndafallsins.

Contemplation

Lonely life, what was
is now all gone.
I used to have a dream,
now I don't have one.
Fight or flight -
all is said and done.

Freedom dies when
every choice is won.
- Brings up homegrown hate.

Peaceful nights were few,
still we had our own.
We made some friends,
now they are all gone.

Another night where
everything is wrong.
I've lost my track
so now I can't go on.

Again rise memories
about my life.
- But they come to late.


Dauðans beðið

Liðið verð ég bráðum lík
og laus frá efnisböndum.
Flekklaus þá mín innri flík
mun flögra í æðri löndum.

Bergþóra

Götu þína
ég þrái að ganga,
fá gengna
æfina langa.
Í stöðugleika,
óstirður og
án stefnuleysis
- ég uppleysist -
í fengna fegurð
alls á þínum vegi.

Prikið (kaffihús)

Skál er gefin af skynsemi
svo skýrt til upphafningar.
Sælt hér er og sálarstyrkjandi
sem heiti ég Jón Ingvar.

miðvikudagur, 16. október 2013

Tilraun til aflausnar

I.
Drifið var á inní djúpi næturinnar
er dansinn við saman ljúflega stigum
í kærleika og hlýju - á fjölum fyrrum
vígvallar; svo firrtum, til þess sama...
-
    Höndum heitum við héldumst
og þétt að hvoru öðru þrýstumst
í eitt. Undir léku tónar ljúfir - lágt -
en þó nóg til að njóta.
Hring eftir hring í hrífandi,
ljúfum dróma; skref fyrir skref
meðal óma rafrænnar róman-
tíkur.

Loftið ljómað lýsingu morgun-
geislanna í bland við stál-
stallana í taktfylltu tómi rökkursins,
sem flöktandi mótaði sjálft sig til fulls...
Sú líðandi stund naut sín,
þó stutt. Tónarnir þagna - hverfa -
verða að mynningu fortíðar;
okkar kæru fyrstu kynningar...

Í loga kertaljóssins út springur fram
mynd í kollinum, skuggaleikur
á lágbirtum vegg - samvaxin heild -
„loksins, loksins að lokum er leitin“!

- En nei...

Dansinn hafði dottið,
fallið við brottfall hljómanna;
dysjað sjálfan sig hið snarasta.
Myndin af veggnum, hún horfin
og nú aðeins tvær stakar, ófullkomnar
ummótanir fyrir verum...

Leisast þá lófar og látbragðið tekur við;
öfundin, refsingin, brjálæðið og allt sem
því fylgir svo blessunarlega sárt - að
það manni kennir sjálfan sig
að þekkja - leitast við að á stoltinu
hnekkja og hætta, fyrst og síðast,
innra sjálfið að blekkja með
hugmyndum um  hvað var,
og þar með sagt það sem
ekki nú fæst fært úr stað.

Ímyndunaraflið úr læðingi losnar
og laumast til'að spinna tauma
óargarfléttu hugmynda
- ekki með réttu.
Ranglega úr samhengi fengnar;
flóra alls þess versta nú
fær að blómstra sínu mesta.


II.
En aftur að málinu, atriðinu
sem ég á minn einfalda hátt
vildi upprifja, frá segja, og
þannig - einhvern veginn
endurupplifa (þó ekki):

Við stóðum í mekki reykjar
og ásta - þó tapaðrar - við
rifjuðum upp og endurskapaða
sýndum og veltum yfir
vöngum. En að lokum þeim
hugbrotum ströngum, við
sáum það sama - okkur báðum
bæði til lættis og ama - að
til lengdar „leiðinlagðist“
leiðin okkar beggja.

Þar með við náðum loks að
leggja blessun eina - hreyna -
yfir það sem fortíðin kunni
að geyma, og sjá framtíðina
fulla af tækifærum með sér
teyma - nýjum og spennandi.

Já, frumefnin að endingu
skildu okkur að - virkuðu
ekki einsog við vildum
tilætlast...

- því tilætlunin byggð
var á frati.

Svo eldur mót vatni
stóð eftir, í hálfu gati -
brann upp, meðan vatnið
andaðist...

- og hvorugt skipti skapi.


III.
Með bros á vör og kinnarnar reiddar
við kvöddumst, tókumst í faðma og
glöddumst yfir samverustundinni ný-
liðinni. En úr augunum - steinum hvors
annars við hinsvegar lásum, það sama;
brosnar vonir, drauma og þrár um eilífa ást
- og endalaus tár til að losa okkur við þau
sálarsár sem eftir við skildum, blæðandi út...
Við björgina vildum og við reyndum,
en bölið slóst með í leyndum.

Nú úti það ævintýr, ásamt öðrum
draumum dreymdum. En bjartur,
hýr, rís dagur nýr og ég vakna til
lífsins - raunveruleikans - „þess“
sem er „nú“; þess sem verður svo
aldrei aftur. Og aldrei, vonandi mun
mér þrjóta kraftur og sú dyggð til
þeirra verka sem tel ég, sjálfan mig
fyrir, merkari en merka.

Þannig aftur ég held, sem „ég“, út
í núið og í sjálfum mér el lífið upp
á nýtt - því það „er“.
-
Þetta er hin leiðandi leit til úrbóta,
langur leiðangur, í þyngri kantinum
- á latínu. Nú amstur og angur enda
hljóta að taka, og til baka leiðrétta
tilraunir til leiðréttinga gjörða eigin saka...
              (Hljóð í hnipri)
        Skotin riðu af í myrkri.


IV.
Nú eftir stend ég einsog
Skarphéðinn í kolunum;
brunninn upp að hnjám
íklæddur kyrtli hvítum,
þó sár - þá erfi ég ekki
verkið sjálft, né þá er frá
hlutust banvænir hnekkir.

Loks sálinni gefin var þekking
til að raunverulega, ítarlega og
sannlega greina rétt - rétt frá röngu.

Því löngum hef ég villst,
á vegum röngum. En nú
fyrst mér sýnist allur vafi
horfinn og byrja að skilja
hvað lífið hefur í raun og
veru til botns að geyma!


V.
- Eða er mér kannski ennþá að dreyma..?

þriðjudagur, 15. október 2013

Ísland í dag

Lítið er vort land,
löngu siglt í strand -
vanað sínum vilja
til'að veg sinn skilja
         sem og
mátt sinnar mergðar.

        Þann vilja,
sem mannkynið fegrar
og vísdóm stjarnanna
elur í eilífð aldanna.

Sú alúðarvera
sem hefur þann
heiðarleika að gefa
að hefja upp jákvæðni
       - úr efa -
það er, eyjan mín
yndislega.
Okkur öllum
var hún gefin.
Svo nú dansinn
skulum við stíga
skrefin í hringnum
endalausa
     - og hnýga -
í blessun galdurs bundinna hljóða;
bragalist vorar einstöku þjóðar.

-
En eymdarlega nú vízt elur
sig elja, súr til úrbóta.
Börnin sín, og búið selur
bögu fyrir ljóta.

Frjálslegt fyllerý eftir tónleika

Lengi við sátum og láðum eyra,
leifðum okkur að njóta tóna.
Kannski við kyngjum áfengi meira
og kyrjum saman þar til'að nónar?

----

Og lífið hélt áfram
einsog
nornirnar höfðu fyrir
um spáð.
En nú var tíminn orðinn annar
en áður hafði verið.

Nú var kominn tími mann-
legrar hugsunar og gilda.
Nú var fæðingin loks yfirstaðin
og lífið hélt áfram í nýju umhverfi.

- Orðið var loksins
  orðið að holdi;
  heildinni sem lofað hafði verið
  óreiðunni
  undangenginni...

Nothing wrong (All is good)

A growing force
- upwards of course -
builds my sight
over night.
From roots has grown,
a new child is born.

Walking along
fictional roads,
my friends.
Where everything
finds it self in the end.
Living out of body
- floating free.
In that state you'll find me.

Imaginary are the worlds
gentle shifts; tales growing
of fairies - make-believe!
Reallity is just a word
of evidence for what seems
to make the most sence...

All is good
as it should.
Nothing wrong
about my song.

Ónefnt

Engum lögum á mark ég tek
er afskræma hið rétta.
Þeim er leiða lýðinn í villutrú
og lygi uppá pretta.

Kurteisin hún manni kemur
kannski langt, eða ekki.
Stirðu og þungu stefin lemur
í stefnuleysi - það best ég þekki.

Ljúfmennskan, hægt með laumast
lífinu löngu, hart í gegn.
Nú virðist mér það allra naumast!
Nútíðin er mér um megn.

mánudagur, 14. október 2013

My new start

Two different worlds,
where "love" is just another word
all brought together and quietly composed
- by rock and roll -
and leaves behind a pure soul.

While bypassing time
I found my peace, deep in a rhyme.
Between two rocks of greater minds and fools
- I slowly move -
and catch a glimpse of lives truth.

---

Feelings that I can't define
now slowly cross my mind,
and there - forever -
they will be mine
through time.

---

A low, whispered song
that makes us grow, and then go on
until we are destined
and orderly prepared
with bright light - pure air -
while evil does all good dare.

So free; I am mine!
I should be dead, but I am fine.
All so carefully made right into shapes
- ways of wondrous states -
my mind eternally there stays...

Love, unconditional
brings the power over all
down from the mind, straight into'the heart
and splits apart
- making'up my new start.

Staðið hef ég stundir

Staðið hef ég stundir langar
og stöðu mína metið.
Hugleiðingar átt hef margar,
en hatt minn aldrei étið.

Skapið er sett
á sköpunnar-stétt,
þá götu svo aflanga;
úr fjötrum ég stefni þangað.

Lepjað hef ég úldinn löður,
látið undan þrautum.
Ákallað Allsherjaföður
umlukinn ljótum fautum.

Skapið er sett
á sköpunnar-stétt,
þá götu svo aflanga;
úr fjötrum ég stefni þangað.

Bjartur nú morgun, glatt'hann betrun færir
og batnandi líðan, því af'mér er runnið
það bölæðis-brjálæði sem yfir kæfði
allt sem ég fyrir hafði unnið.

Skapið er sett
á sköpunnar-stétt,
þá götu svo aflanga;
úr fjötrum ég stefni þangað.

En framtíðin, bjartari'og frama gefin,
frjálslega ég leifi henni'að trúa
fyrir hamingju, og hamslausri gleði
í heiminum - sem ég vil búa.

Skapið er sett
á sköpunnar-stétt,
þá götu svo aflanga;
úr fjötrum ég stefni þangað.

Kostir valkvíða

Öllum kostum er ég gefinn
                til'að
áskotnast frægð - frama;
         lemja og lama
         leti sálarinnar.
Finna þefinn af grasinu,
    ekki aðeins skítnum
    sem á það er borinn.

                „Lirfa“
- en púpan neitar að springa -
     því fiðrildið þar innra
     þorir ekki að frelsast.

En náttúran lætur oft illa,
       og vill þá spilla
    geði'og gleði guma;
    breyta góðum vetri
       í slæmt sumar...

---

Stundum gengur vel
þó viljinn sé gefinn
í skilning annan.

Ég tek svartri nóttinni
sem björtum degi.

Ný byrjun (Líbríum)

Botninum náð - ný byrjun þráð...
Með vota hvarma, veikur karl harmar
þá ákvörðun er hann leiddi
að stað, sem framhjá sneiddi
rökum hugans.

Á nýjum stað staddur - og það
átti að bæta, en bölina mun kæta.
Afturhvörf til þess arfa,
sem alinn er milli fráhvarfa
alsælu lyginnar.

- Allt sem hann þráði var ný byrjun,
en hann fékk ekkert annað en Líbríum...

Tungur ótamdar - illa hamdar;
spúandi kok sín vitleysu-rop.
Spakmæli andskotans
sem hræða trúverðuleika hans -
þess, sem sefar sitt eigið hjarta.

Og'nú aftur hann álpast, án allrar hjálpar.
Forsendur brostnar og reiðin hún blossar.
Gjörðin óendanleg; efninu gengdarleg.
Hann þjáningu elur og sjálfum sér selur
það, að sjálfsins val sé öllu æðra.

- Allt sem hann þráði var ný byrjun,
en hann fékk ekkert annað en Líbríum...

Saga af slitum

Við óðum
í glóðum
bæði berfætt.
Djúpt við sáðum
röngum ráðum
löngum, sem réttum.

Ljáðum og nett
að gáðum
í sálinn létt,
en gleði-söngva
fleiri öngva
gátum grætt.

Í hjáleiðum,
strætum breiðum;
þar lausnir lágu.
En að fanga
þeirra smæstu anga
ei við gátum.
Urðum leið,
og buguð í neyð
saman eftir sátum.

Lengi lauguð;
látlaus - þó
forhert til frambúðar
við náðum nauðug
náðinni
og
elfdum til alúðar
þar til okkar slitnu
samvistum,
útslitin við slitum.

Vefja - vefja!

Vefja - vefja!
Látum oss nú líða
sem léttlátum.
Vefja - vefja!
Sjáum saman undir
framsetta yfirlætið.
Vefja - vefja!
Egg radda vora brýnum
til óreiðu að jafna.

- svo -

Vefja - vefja!
Lát eigi tafir framvindu
ókurteisinnar yður blinda.
Vefja - vefja!
Vitund skalt nú seðja...
Rétt skal reifa
raunveruleikann;
reykja sannleikann.

- ó -

Vefja - vefja...

Aska eldanna

Af hennar vörum heitum
- lekur - hamslaus unaður.
Mjúk orð alúðar, þær
- skuldlaust - fram færa.

Allur er hugans metnaður
- og hjarta - gefinn til góðs;
þess gersemasjóðs
- rótgróinnar gæsku - vitundar sálar,
(og æsku)
í sameiginlegri leið boðefna og tauga
til hins innra auga.

---

Hún á minn hug
hálfan semog heilan.
Þó lítinn sýni ég dug
til að skónum uppúr heilla,
þá vildi ég helst
færa jörðina fram
og til baka;
upp og niður hrista
og skaka

- aðeins svo að hún sæi mig og segði: „Hæ“... (bara kannski)

Þessvegna í miðri lokasenu Ragnaraka
eða í ljósaskiptum augnablika -
...svo lítið sem kurteist heils
(einsog þegar dagurinn heilsar nóttinni)

- og öfugt -

allt svo göfugt og gefið fegurð;
sjálfsagt og stjórnað af ást.
Það gera mundi daginn treglýsanlegan,
samt svo yndislega sannlegan.

---

(Þá snerting fékst fengin, allt í einu og...)

Inní búknum brýst út kitl
- adrenalín -
er mér birtist mér sú sýn
sem sælu veitir
og vissu gefur
um, að lífið sé fallegt...
- snilldarleg einföldun á flóknu samspili
tíma og rúms, með tilliti til þá, þegar og nús...

Þar sem gagnsleysið reynist gagnlegt að lokum.

Ráð til lagt

Skuld er á skellt skynlaust vitið
meðan hamrað er á heiminum...
- Það helst mér þykir skrítið.
Hér fá þjófar friðþægingu
meðan fátækt aðrir líða.
Synir Mammons, strax í fæðingu
sárt mannkynið svíða.

En nú veit ég betur
- á endanum bíður oss dómur.
Þar'sem í lokarimmu Ragnaraka
réttlátur dynur sá ómur
sem þyrma mun þeim mögum Burs
sem þjáðir sitja þó sáttir.
En rifnir verða þeir ranglátu
og reyttir í allar áttir.

Því öfund, græðgi og ærumeiðing
æðstir þykja mannanna lasta.
Goðanna griðum ei eru baðaðir
þeir sem úr glerhúsum grjóti kasta.

Girnist þú yfir höfuð gull,
gæta þín skaltu þá vinur.
Því undan djöfuls glamúr ósk
á endanum sárt þú stynur.

Samtal á bekk við Austurvöll (það sem ég náði a.m.k.)

I.
„Þegar þeir tróðu ógeði ofan á borgina,
þá var kaffið óðalsgefið þeim náðuðu.
Kopar-slegið sumarið gefið sálinni;
við sitjandi á þökum hárra húsanna,
virðandi fyrir okkur fólkið við tjörnina.
Vinirnir allir gefnir göfugleika - möguleika -
lakkandi karma tilveru sinnar...
Stuðið gerði líka sinn tilgang,
kom sátt á hug og líkama;
upp að því sama og maður vildi“.

II.
„Ég, sem er;
er sem er.
- það sem ég
kýs mér, ég
vel - því er...“

III.
„Svo hætti ég að geta sofnað -
afsannandi tímann, í tíma og ótíma
...bara fyrir sjálfan mig“.

Bank, bank - it's the punk-police!

Liggjandi lúinn rúminu í,
er lamið var gratt á dyrnar.
Reis ég'úr rekkju - tók húninn í
fyrir rannsóknarlögreglu-kýrnar.

Ruddust þær inn, reiðar, með látum
- ringlaður varð ég, og lostinn.
En'af kurteisi tók ég krúnunnar-dátum
svo kulnaði snart þeirra rosti.

Gáttaðir urðu af geðprýði minni,
gátu ekki annað en dáðst
er kærleik færði'þeim skuldlaust í kynni
kyntann með eilífri ást...

---

Aumar sálir, aumir menn!
Aumingjar meðal oss reika
stamandi og vit-stolnir í senn
og stirðir til persónuleika.

Reglubundnir, þó viltir ráða;
á ranghugmyndum aldnir.
Snauðir gæsku og sannra dáða;
dagar vizku engir taldir.

Skuldlaust, að lokum

Rösklega ég ráfaði 
reglu og ráðum reyrður
um hinar ríkulegu rökræður 
réttsýnna ragna og gerði mér
gagn og gaman af því 
að reglulega móta til framfærslu 
festu þess glaums sem
gefinn er hinni lúmsku áætlun.

Skuldlaust, að lokum.


Sú gefjun mér var falin í byrjun; 

brautryðjun til bata þekkingar
brúkaðrar, sem ósjálfrátt bætir
til batnaðar hegðun mannsskepnunar.

Skuldlaust, að lokum.


Í leiðslu ég leiddur er fram í ljós 

kenninga - kennslustund innri þekkingar,
viðurkenning vitundar allt til endingar.
Svo, samvizkulega sinna ég má
því takmarki að mjúkri lendingu ná.
Friðinn í hjartanu úr Helju heimta
og fagna frelsinu nýfundna.

Skuldlaust, að lokum.

Keldru - Kula

Nú kvöld er að komið,
kalt með úða og vindi.

---

Þó skíni eða skúri
þá skapa ég úr því
skemmtilegheit í orðum
- skakkt -
þó ekki úr skorðum...

Sannleikann framfæri hreinan;
ókeikan - beinan, með mínum ljúfa
og blúsaða bakrómi raddarinnar
(úr blindu tómi).

Hending þeirrar framhryndu,
hamslausu orðavindu sem ská
á móti hinu gildandi viti situr.

Í heilabúinu alinn er hiti hagyrðingar,
orðabindinga skynsemi minnar
- þeirra innri bragahátta.

(Mínar dýpstu útskýringar til allra átta)

Því Alfaðir ól sínum sonum
æðri skilning, bundinn vonum
um þroska - sem svo að lokum
mun endurspeglast í honum.

Hlusti! - hver sem heyrir!
Horfi! - hver sem eirir
í lífinu einsog það líður.

Ekkert sá græðir sem situr og bíður
eftir skilningi eða hniti -
þá uppskorið er ekkert að viti.

Muna máttu, og mundu vel,
mundu að skapið stilla (og þel)
hugsanir og það sem er hollast
til framkvæmda og framkomu
til næsta frænda!

Því, ef líf þú virðir ei
sem þitt sama þá tilvera
þín virðist einungis til ama.

Láttu frekar undan,
leyfðu lífinu
að lauga þig alsælu
- lát undan þinni
ímyndunar brælu!

Ást og yndi frekar frá þér breiddu,
öllum ókostum framhjá sneiddu
og í unað drauma skaltu þér lauma,
niður í vitið djúpt grafa
og leita hins eina og eilífa sannleika.

Að endingu skaltu svo veita
væntumþykju ofur heita,
ættingjum þínum og vinum
- sem og auðvitað öllum hinum!

Heimspekileg vangavelta #73

Í ölæði, vímunnar bræði
ég gengið hef lengi
burt frá því sanna.

Fyrir hef fengið
fáránleika að fynna
á síðustu tímum -
og gleymt mínu innra.

Skuld skapsins er
skilin eftir í
þeirri ringulreið
sem alltaf beið
handan við hornið.

Nútíðin fyrirfram orðin
að sögu gærdagsins.

Alúð sýnd, samt
svo sorglega alin
var á trega - týnd,
þó eftirsótt...

En þar stóð efinn
reiðu-til-búinn
fyrir nýsköpuðu stefin
síendurteknu;
dynjandi - ómandi
og anandi í huga.

Þau sannlega
sárt gátu bugað
hina ákveðnu áætlun
sem í sameiningu
við mættum
- hvert og eitt -
óháð meiningum
byggðum á leiðindum.

---

Einingar skapaðar
til lífs og lifnaðar;
hin sjálfgefna alsæla jarðar.

sunnudagur, 13. október 2013

Can you see it?

You see, it starts out from humanities need -
- a need to get higher in a the legal way!
As the years have gone by one another,
I've picked up some ways of many others.

I thought through time I would forget...
Utilising, and using, my mind over body.
(where no arrow tends to shoot astray)

You see, it comes from the most peculiar creed,
fractions in nature, building up captions
of creation; lingering matter, drawn to time...
In ways of revieling our selfs, we answer our feelings.

You see, you see - you see, you see

...   ...   ...   ...   ...   ...

Your enemies are sometimes those
you wouldn't believe to be...

You see...
I saw and have seen;
and still see. -
You see

föstudagur, 11. október 2013

Tilraun til sátta niðurlægingar

Úr mörgu er ég gerður maður
og met allt jafnt til griða.
Lofa hvorki last né þvaður,
læt hið sanna áfram miða.

Lyganöðrur og lágar sálir, 

last ég ber til ykkar.
Ykkur ég bölva og óska báli
er biturleikinn þykknar.

Reiður mjög, rjúkandi af bræði,

rökkur hylur huga minn.
Frá hatrinu fæ ég ekkert næði 
fyrr en slokknar eldurinn.

Hvernig né hvaðan, enginn veit

hvert svo sem það stefnir.
En rosaleg hér var sett í reit

raun, til að sanna efnið.


Heilræði sjálfsins til hugans

Sjáðu við ágangi sýktra sála, nýttu þér neikvæða sáttmála - málhömlur, meinaðrar mýktar þeirra sem kunna ekki blíðu að tala; ófrjáls, frá reglu siðbóta foreldra sinna... HaHa! en sú fásinna - glötun menningar hinnar heilögu þrenningar; eða: „Ég um mig frá mér til mín“ - eða þín? Ráðum fæst ráðið undan bagga málhömlunar. Lengi lifi sá sem slengir löngutöng á móti þeim slefandi þrælum sem taldir eru  í jafnvægi - en bakvið kjaftæði laga - lyga, sig fela.

Reyndu bara að rifja upp róg gleðinnar, þeirrar er þú fyrst kynntist  í bernsku, en gleymdir... En reyndu - reyndu! Reyndu að spá í tal spjátrunganna; spjall þeirra, í óðum hamagangi... Þó þér máske ekki langi.
- en- 
Greindu milli orða hið harmþrunga mal; hinn dauði sónn - lifandi tóm, þá án efa færð sefað þinni forvitni.

-

Að enda leiðir sérhver byrjun, framhjá sneiðir - en hugann þó seiðir. Himnesk gjöf, gefin er huga án endurgjalds og fram að lokum mun duga. Dugar, þar til að lokum kemur; þegar drottinn á dyrnar lemur - þá veistu innst inni  að allt sem þú vannst þér inn var bara hland... -bjór drukkinn til vellíðunar, en nú tómir þínir Urðarbrunnar móti þér gapa; þín ímyndun sem þú sjálfinu skapar í góðri trú...

En með þessu athæfi - sem einungis leiddi að athlægi veru þinnar - þó í ró og næði, gerði eitt og sér meira en nóg. Sjáðu - og þér verður sýnt; heyrðu - og þér heyrist nýtt - orð - ólýsanlegt... Og já, reyndu; mundu, geymdu, og aldrei, aldrei því gleymdu!
- að -
Þú ert „það“ því „það“ ert þú... 
svo ræktaðu vel og vertu því trúr!

The show of lies



If 
it wasn't me
and
it wasn't you,
who else could it be
except for us two?


Who 

is there to blame,
who 

is there to bless? 
Who 
is playing this game?
- I couldn't care less.

fimmtudagur, 10. október 2013

Redeeming ones being

Clarity of mind,
in concern to eternity
sets the line of what is
and what will be.
You see, it is the believe
you manifest
in your chest
which makes and creates
the role
of your sole -
ultimately guides you
to your higher goal...

- Simple as that
it is to react --- to
glory and graciousness
given from righteousness.
Each life is imported to this world
to seek true wealth of its purpose;
moving towards that "something" -
going backwards - yet growing,
yet failing its alternative goal...
---
 
Now, here's my proposal:
      If I commit every bit of myself into
nurture to dedication for the future;
giving all past issues closure...
Would you take my dare, and likewise be there?
Could you honestly care..?

Gamla konan á Hlemmi




Kuldaleg situr ein kona á bekk,
kramin á sál, og á hjarta.
Reynir mest megnis að vera geðþekk,
meðan ríkara fólk sáran kvartar.

Talar um allt milli himins og helju,
hvort við mig eða þig eða aðra.
Og'þó rífir þú kjaft og kallir svo belju,
kerlingin samt ekki hættir að blaðra.

Veit hún um hluti sem fáir af vita;
hefur margan frætt um annað og eitt.
Sagt agnarsögur og veitt öðrum hita,
en aldrei slíkt fengið til baka greitt.

Enginn þykjast vill þekkja'hana,
þegar heilsar hún fólki með „hæ“.
En'ef söknuð fólk finnur til sagnanna,
þá skíst það beint niður'í bæ...

Dvelur hún þarna alla daga,
mér dásamlegt finnst hennar gagn.
Og sjaldan verður þreytt sú saga,
er segist hún taka næsta vagn.