Lítið er vort land,
löngu siglt í strand -
vanað sínum vilja
til'að veg sinn skilja
sem og
mátt sinnar mergðar.
Þann vilja,
sem mannkynið fegrar
og vísdóm stjarnanna
elur í eilífð aldanna.
Sú alúðarvera
sem hefur þann
heiðarleika að gefa
að hefja upp jákvæðni
- úr efa -
það er, eyjan mín
yndislega.
Okkur öllum
var hún gefin.
Svo nú dansinn
skulum við stíga
skrefin í hringnum
endalausa
- og hnýga -
í blessun galdurs bundinna hljóða;
bragalist vorar einstöku þjóðar.
-
En eymdarlega nú vízt elur
sig elja, súr til úrbóta.
Börnin sín, og búið selur
bögu fyrir ljóta.
Samansafn af öllu því efni sem ég hef talið vert að skilja eftir ritað á blaði eða tölvutæki.
Translate
þriðjudagur, 15. október 2013
Ísland í dag
Labels:
Ádeila,
Depurð,
Gagnrýni,
Vangaveltur
Frjálslegt fyllerý eftir tónleika
Lengi við sátum og láðum eyra,
leifðum okkur að njóta tóna.
Kannski við kyngjum áfengi meira
og kyrjum saman þar til'að nónar?
----
Og lífið hélt áfram
einsog
nornirnar höfðu fyrir
um spáð.
En nú var tíminn orðinn annar
en áður hafði verið.
Nú var kominn tími mann-
legrar hugsunar og gilda.
Nú var fæðingin loks yfirstaðin
og lífið hélt áfram í nýju umhverfi.
- Orðið var loksins
orðið að holdi;
heildinni sem lofað hafði verið
óreiðunni
undangenginni...
leifðum okkur að njóta tóna.
Kannski við kyngjum áfengi meira
og kyrjum saman þar til'að nónar?
----
Og lífið hélt áfram
einsog
nornirnar höfðu fyrir
um spáð.
En nú var tíminn orðinn annar
en áður hafði verið.
Nú var kominn tími mann-
legrar hugsunar og gilda.
Nú var fæðingin loks yfirstaðin
og lífið hélt áfram í nýju umhverfi.
- Orðið var loksins
orðið að holdi;
heildinni sem lofað hafði verið
óreiðunni
undangenginni...
Nothing wrong (All is good)
A growing force
- upwards of course -
builds my sight
over night.
From roots has grown,
a new child is born.
Walking along
fictional roads,
my friends.
Where everything
finds it self in the end.
Living out of body
- floating free.
In that state you'll find me.
Imaginary are the worlds
gentle shifts; tales growing
of fairies - make-believe!
Reallity is just a word
of evidence for what seems
to make the most sence...
All is good
as it should.
Nothing wrong
about my song.
- upwards of course -
builds my sight
over night.
From roots has grown,
a new child is born.
Walking along
fictional roads,
my friends.
Where everything
finds it self in the end.
Living out of body
- floating free.
In that state you'll find me.
Imaginary are the worlds
gentle shifts; tales growing
of fairies - make-believe!
Reallity is just a word
of evidence for what seems
to make the most sence...
All is good
as it should.
Nothing wrong
about my song.
Ónefnt
Engum lögum á mark ég tek
er afskræma hið rétta.
Þeim er leiða lýðinn í villutrú
og lygi uppá pretta.
Kurteisin hún manni kemur
kannski langt, eða ekki.
Stirðu og þungu stefin lemur
í stefnuleysi - það best ég þekki.
Ljúfmennskan, hægt með laumast
lífinu löngu, hart í gegn.
Nú virðist mér það allra naumast!
Nútíðin er mér um megn.
er afskræma hið rétta.
Þeim er leiða lýðinn í villutrú
og lygi uppá pretta.
Kurteisin hún manni kemur
kannski langt, eða ekki.
Stirðu og þungu stefin lemur
í stefnuleysi - það best ég þekki.
Ljúfmennskan, hægt með laumast
lífinu löngu, hart í gegn.
Nú virðist mér það allra naumast!
Nútíðin er mér um megn.
Labels:
Ádeila,
Gremja,
Tækifærisvísur,
Þunglyndi
mánudagur, 14. október 2013
My new start
Two different worlds,
where "love" is just another word
all brought together and quietly composed
- by rock and roll -
and leaves behind a pure soul.
While bypassing time
I found my peace, deep in a rhyme.
Between two rocks of greater minds and fools
- I slowly move -
and catch a glimpse of lives truth.
---
Feelings that I can't define
now slowly cross my mind,
and there - forever -
they will be mine
through time.
---
A low, whispered song
that makes us grow, and then go on
until we are destined
and orderly prepared
with bright light - pure air -
while evil does all good dare.
So free; I am mine!
I should be dead, but I am fine.
All so carefully made right into shapes
- ways of wondrous states -
my mind eternally there stays...
Love, unconditional
brings the power over all
down from the mind, straight into'the heart
and splits apart
- making'up my new start.
where "love" is just another word
all brought together and quietly composed
- by rock and roll -
and leaves behind a pure soul.
While bypassing time
I found my peace, deep in a rhyme.
Between two rocks of greater minds and fools
- I slowly move -
and catch a glimpse of lives truth.
---
Feelings that I can't define
now slowly cross my mind,
and there - forever -
they will be mine
through time.
---
A low, whispered song
that makes us grow, and then go on
until we are destined
and orderly prepared
with bright light - pure air -
while evil does all good dare.
So free; I am mine!
I should be dead, but I am fine.
All so carefully made right into shapes
- ways of wondrous states -
my mind eternally there stays...
Love, unconditional
brings the power over all
down from the mind, straight into'the heart
and splits apart
- making'up my new start.
Labels:
Enska,
Gleði,
Mannlýsing,
Uppljómun,
Von
Staðið hef ég stundir
Staðið hef ég stundir langar
og stöðu mína metið.
Hugleiðingar átt hef margar,
en hatt minn aldrei étið.
Skapið er sett
á sköpunnar-stétt,
þá götu svo aflanga;
úr fjötrum ég stefni þangað.
Lepjað hef ég úldinn löður,
látið undan þrautum.
Ákallað Allsherjaföður
umlukinn ljótum fautum.
Skapið er sett
á sköpunnar-stétt,
þá götu svo aflanga;
úr fjötrum ég stefni þangað.
Bjartur nú morgun, glatt'hann betrun færir
og batnandi líðan, því af'mér er runnið
það bölæðis-brjálæði sem yfir kæfði
allt sem ég fyrir hafði unnið.
Skapið er sett
á sköpunnar-stétt,
þá götu svo aflanga;
úr fjötrum ég stefni þangað.
En framtíðin, bjartari'og frama gefin,
frjálslega ég leifi henni'að trúa
fyrir hamingju, og hamslausri gleði
í heiminum - sem ég vil búa.
Skapið er sett
á sköpunnar-stétt,
þá götu svo aflanga;
úr fjötrum ég stefni þangað.
og stöðu mína metið.
Hugleiðingar átt hef margar,
en hatt minn aldrei étið.
Skapið er sett
á sköpunnar-stétt,
þá götu svo aflanga;
úr fjötrum ég stefni þangað.
Lepjað hef ég úldinn löður,
látið undan þrautum.
Ákallað Allsherjaföður
umlukinn ljótum fautum.
Skapið er sett
á sköpunnar-stétt,
þá götu svo aflanga;
úr fjötrum ég stefni þangað.
Bjartur nú morgun, glatt'hann betrun færir
og batnandi líðan, því af'mér er runnið
það bölæðis-brjálæði sem yfir kæfði
allt sem ég fyrir hafði unnið.
Skapið er sett
á sköpunnar-stétt,
þá götu svo aflanga;
úr fjötrum ég stefni þangað.
En framtíðin, bjartari'og frama gefin,
frjálslega ég leifi henni'að trúa
fyrir hamingju, og hamslausri gleði
í heiminum - sem ég vil búa.
Skapið er sett
á sköpunnar-stétt,
þá götu svo aflanga;
úr fjötrum ég stefni þangað.
Kostir valkvíða
Öllum kostum er ég gefinn
til'að
áskotnast frægð - frama;
lemja og lama
leti sálarinnar.
Finna þefinn af grasinu,
ekki aðeins skítnum
sem á það er borinn.
„Lirfa“
- en púpan neitar að springa -
því fiðrildið þar innra
þorir ekki að frelsast.
En náttúran lætur oft illa,
og vill þá spilla
geði'og gleði guma;
breyta góðum vetri
í slæmt sumar...
---
Stundum gengur vel
þó viljinn sé gefinn
í skilning annan.
Ég tek svartri nóttinni
sem björtum degi.
til'að
áskotnast frægð - frama;
lemja og lama
leti sálarinnar.
Finna þefinn af grasinu,
ekki aðeins skítnum
sem á það er borinn.
„Lirfa“
- en púpan neitar að springa -
því fiðrildið þar innra
þorir ekki að frelsast.
En náttúran lætur oft illa,
og vill þá spilla
geði'og gleði guma;
breyta góðum vetri
í slæmt sumar...
---
Stundum gengur vel
þó viljinn sé gefinn
í skilning annan.
Ég tek svartri nóttinni
sem björtum degi.
Ný byrjun (Líbríum)
Botninum náð - ný byrjun þráð...
Með vota hvarma, veikur karl harmar
þá ákvörðun er hann leiddi
að stað, sem framhjá sneiddi
rökum hugans.
Á nýjum stað staddur - og það
átti að bæta, en bölina mun kæta.
Afturhvörf til þess arfa,
sem alinn er milli fráhvarfa
alsælu lyginnar.
- Allt sem hann þráði var ný byrjun,
en hann fékk ekkert annað en Líbríum...
Tungur ótamdar - illa hamdar;
spúandi kok sín vitleysu-rop.
Spakmæli andskotans
sem hræða trúverðuleika hans -
þess, sem sefar sitt eigið hjarta.
Og'nú aftur hann álpast, án allrar hjálpar.
Forsendur brostnar og reiðin hún blossar.
Gjörðin óendanleg; efninu gengdarleg.
Hann þjáningu elur og sjálfum sér selur
það, að sjálfsins val sé öllu æðra.
- Allt sem hann þráði var ný byrjun,
en hann fékk ekkert annað en Líbríum...
Með vota hvarma, veikur karl harmar
þá ákvörðun er hann leiddi
að stað, sem framhjá sneiddi
rökum hugans.
Á nýjum stað staddur - og það
átti að bæta, en bölina mun kæta.
Afturhvörf til þess arfa,
sem alinn er milli fráhvarfa
alsælu lyginnar.
- Allt sem hann þráði var ný byrjun,
en hann fékk ekkert annað en Líbríum...
Tungur ótamdar - illa hamdar;
spúandi kok sín vitleysu-rop.
Spakmæli andskotans
sem hræða trúverðuleika hans -
þess, sem sefar sitt eigið hjarta.
Og'nú aftur hann álpast, án allrar hjálpar.
Forsendur brostnar og reiðin hún blossar.
Gjörðin óendanleg; efninu gengdarleg.
Hann þjáningu elur og sjálfum sér selur
það, að sjálfsins val sé öllu æðra.
- Allt sem hann þráði var ný byrjun,
en hann fékk ekkert annað en Líbríum...
Labels:
Áfengi,
Eftirsjá,
Reiði / gremja,
Vímuefni,
Þunglyndi
Saga af slitum
Við óðum
í glóðum
bæði berfætt.
Djúpt við sáðum
röngum ráðum
löngum, sem réttum.
Ljáðum og nett
að gáðum
í sálinn létt,
en gleði-söngva
fleiri öngva
gátum grætt.
Í hjáleiðum,
strætum breiðum;
þar lausnir lágu.
En að fanga
þeirra smæstu anga
ei við gátum.
Urðum leið,
og buguð í neyð
saman eftir sátum.
Lengi lauguð;
látlaus - þó
forhert til frambúðar
við náðum nauðug
náðinni
og
elfdum til alúðar
þar til okkar slitnu
samvistum,
útslitin við slitum.
í glóðum
bæði berfætt.
Djúpt við sáðum
röngum ráðum
löngum, sem réttum.
Ljáðum og nett
að gáðum
í sálinn létt,
en gleði-söngva
fleiri öngva
gátum grætt.
Í hjáleiðum,
strætum breiðum;
þar lausnir lágu.
En að fanga
þeirra smæstu anga
ei við gátum.
Urðum leið,
og buguð í neyð
saman eftir sátum.
Lengi lauguð;
látlaus - þó
forhert til frambúðar
við náðum nauðug
náðinni
og
elfdum til alúðar
þar til okkar slitnu
samvistum,
útslitin við slitum.
Vefja - vefja!
Vefja - vefja!
Látum oss nú líða
sem léttlátum.
Vefja - vefja!
Sjáum saman undir
framsetta yfirlætið.
Vefja - vefja!
Egg radda vora brýnum
til óreiðu að jafna.
- svo -
Vefja - vefja!
Lát eigi tafir framvindu
ókurteisinnar yður blinda.
Vefja - vefja!
Vitund skalt nú seðja...
Rétt skal reifa
raunveruleikann;
reykja sannleikann.
- ó -
Vefja - vefja...
Látum oss nú líða
sem léttlátum.
Vefja - vefja!
Sjáum saman undir
framsetta yfirlætið.
Vefja - vefja!
Egg radda vora brýnum
til óreiðu að jafna.
- svo -
Vefja - vefja!
Lát eigi tafir framvindu
ókurteisinnar yður blinda.
Vefja - vefja!
Vitund skalt nú seðja...
Rétt skal reifa
raunveruleikann;
reykja sannleikann.
- ó -
Vefja - vefja...
Aska eldanna
Af hennar vörum heitum
- lekur - hamslaus unaður.
Mjúk orð alúðar, þær
- skuldlaust - fram færa.
Allur er hugans metnaður
- og hjarta - gefinn til góðs;
þess gersemasjóðs
- rótgróinnar gæsku - vitundar sálar,
(og æsku)
í sameiginlegri leið boðefna og tauga
til hins innra auga.
---
Hún á minn hug
hálfan semog heilan.
Þó lítinn sýni ég dug
til að skónum uppúr heilla,
þá vildi ég helst
færa jörðina fram
og til baka;
upp og niður hrista
og skaka
- aðeins svo að hún sæi mig og segði: „Hæ“... (bara kannski)
Þessvegna í miðri lokasenu Ragnaraka
eða í ljósaskiptum augnablika -
...svo lítið sem kurteist heils
(einsog þegar dagurinn heilsar nóttinni)
- og öfugt -
allt svo göfugt og gefið fegurð;
sjálfsagt og stjórnað af ást.
Það gera mundi daginn treglýsanlegan,
samt svo yndislega sannlegan.
---
(Þá snerting fékst fengin, allt í einu og...)
Inní búknum brýst út kitl
- adrenalín -
er mér birtist mér sú sýn
sem sælu veitir
og vissu gefur
um, að lífið sé fallegt...
- snilldarleg einföldun á flóknu samspili
tíma og rúms, með tilliti til þá, þegar og nús...
Þar sem gagnsleysið reynist gagnlegt að lokum.
- lekur - hamslaus unaður.
Mjúk orð alúðar, þær
- skuldlaust - fram færa.
Allur er hugans metnaður
- og hjarta - gefinn til góðs;
þess gersemasjóðs
- rótgróinnar gæsku - vitundar sálar,
(og æsku)
í sameiginlegri leið boðefna og tauga
til hins innra auga.
---
Hún á minn hug
hálfan semog heilan.
Þó lítinn sýni ég dug
til að skónum uppúr heilla,
þá vildi ég helst
færa jörðina fram
og til baka;
upp og niður hrista
og skaka
- aðeins svo að hún sæi mig og segði: „Hæ“... (bara kannski)
Þessvegna í miðri lokasenu Ragnaraka
eða í ljósaskiptum augnablika -
...svo lítið sem kurteist heils
(einsog þegar dagurinn heilsar nóttinni)
- og öfugt -
allt svo göfugt og gefið fegurð;
sjálfsagt og stjórnað af ást.
Það gera mundi daginn treglýsanlegan,
samt svo yndislega sannlegan.
---
(Þá snerting fékst fengin, allt í einu og...)
Inní búknum brýst út kitl
- adrenalín -
er mér birtist mér sú sýn
sem sælu veitir
og vissu gefur
um, að lífið sé fallegt...
- snilldarleg einföldun á flóknu samspili
tíma og rúms, með tilliti til þá, þegar og nús...
Þar sem gagnsleysið reynist gagnlegt að lokum.
Ráð til lagt
Skuld er á skellt skynlaust vitið
meðan hamrað er á heiminum...
- Það helst mér þykir skrítið.
Hér fá þjófar friðþægingu
meðan fátækt aðrir líða.
Synir Mammons, strax í fæðingu
sárt mannkynið svíða.
En nú veit ég betur
- á endanum bíður oss dómur.
Þar'sem í lokarimmu Ragnaraka
réttlátur dynur sá ómur
sem þyrma mun þeim mögum Burs
sem þjáðir sitja þó sáttir.
En rifnir verða þeir ranglátu
og reyttir í allar áttir.
Því öfund, græðgi og ærumeiðing
æðstir þykja mannanna lasta.
Goðanna griðum ei eru baðaðir
þeir sem úr glerhúsum grjóti kasta.
Girnist þú yfir höfuð gull,
gæta þín skaltu þá vinur.
Því undan djöfuls glamúr ósk
á endanum sárt þú stynur.
meðan hamrað er á heiminum...
- Það helst mér þykir skrítið.
Hér fá þjófar friðþægingu
meðan fátækt aðrir líða.
Synir Mammons, strax í fæðingu
sárt mannkynið svíða.
En nú veit ég betur
- á endanum bíður oss dómur.
Þar'sem í lokarimmu Ragnaraka
réttlátur dynur sá ómur
sem þyrma mun þeim mögum Burs
sem þjáðir sitja þó sáttir.
En rifnir verða þeir ranglátu
og reyttir í allar áttir.
Því öfund, græðgi og ærumeiðing
æðstir þykja mannanna lasta.
Goðanna griðum ei eru baðaðir
þeir sem úr glerhúsum grjóti kasta.
Girnist þú yfir höfuð gull,
gæta þín skaltu þá vinur.
Því undan djöfuls glamúr ósk
á endanum sárt þú stynur.
Samtal á bekk við Austurvöll (það sem ég náði a.m.k.)
I.
„Þegar þeir tróðu ógeði ofan á borgina,
þá var kaffið óðalsgefið þeim náðuðu.
Kopar-slegið sumarið gefið sálinni;
við sitjandi á þökum hárra húsanna,
virðandi fyrir okkur fólkið við tjörnina.
Vinirnir allir gefnir göfugleika - möguleika -
lakkandi karma tilveru sinnar...
Stuðið gerði líka sinn tilgang,
kom sátt á hug og líkama;
upp að því sama og maður vildi“.
II.
„Ég, sem er;
er sem er.
- það sem ég
kýs mér, ég
vel - því er...“
III.
„Svo hætti ég að geta sofnað -
afsannandi tímann, í tíma og ótíma
...bara fyrir sjálfan mig“.
„Þegar þeir tróðu ógeði ofan á borgina,
þá var kaffið óðalsgefið þeim náðuðu.
Kopar-slegið sumarið gefið sálinni;
við sitjandi á þökum hárra húsanna,
virðandi fyrir okkur fólkið við tjörnina.
Vinirnir allir gefnir göfugleika - möguleika -
lakkandi karma tilveru sinnar...
Stuðið gerði líka sinn tilgang,
kom sátt á hug og líkama;
upp að því sama og maður vildi“.
II.
„Ég, sem er;
er sem er.
- það sem ég
kýs mér, ég
vel - því er...“
III.
„Svo hætti ég að geta sofnað -
afsannandi tímann, í tíma og ótíma
...bara fyrir sjálfan mig“.
Bank, bank - it's the punk-police!
Liggjandi lúinn rúminu í,
er lamið var gratt á dyrnar.
Reis ég'úr rekkju - tók húninn í
fyrir rannsóknarlögreglu-kýrnar.
Ruddust þær inn, reiðar, með látum
- ringlaður varð ég, og lostinn.
En'af kurteisi tók ég krúnunnar-dátum
svo kulnaði snart þeirra rosti.
Gáttaðir urðu af geðprýði minni,
gátu ekki annað en dáðst
er kærleik færði'þeim skuldlaust í kynni
kyntann með eilífri ást...
---
Aumar sálir, aumir menn!
Aumingjar meðal oss reika
stamandi og vit-stolnir í senn
og stirðir til persónuleika.
Reglubundnir, þó viltir ráða;
á ranghugmyndum aldnir.
Snauðir gæsku og sannra dáða;
dagar vizku engir taldir.
er lamið var gratt á dyrnar.
Reis ég'úr rekkju - tók húninn í
fyrir rannsóknarlögreglu-kýrnar.
Ruddust þær inn, reiðar, með látum
- ringlaður varð ég, og lostinn.
En'af kurteisi tók ég krúnunnar-dátum
svo kulnaði snart þeirra rosti.
Gáttaðir urðu af geðprýði minni,
gátu ekki annað en dáðst
er kærleik færði'þeim skuldlaust í kynni
kyntann með eilífri ást...
---
Aumar sálir, aumir menn!
Aumingjar meðal oss reika
stamandi og vit-stolnir í senn
og stirðir til persónuleika.
Reglubundnir, þó viltir ráða;
á ranghugmyndum aldnir.
Snauðir gæsku og sannra dáða;
dagar vizku engir taldir.
Labels:
Grín,
Mynningar,
Reiði,
Saga,
Tækifærisvísur
Skuldlaust, að lokum
Rösklega ég ráfaði
reglu og ráðum reyrður
um hinar ríkulegu rökræður
réttsýnna ragna og gerði mér
gagn og gaman af því
að reglulega móta til framfærslu
festu þess glaums sem
gefinn er hinni lúmsku áætlun.
Skuldlaust, að lokum.
Sú gefjun mér var falin í byrjun;
brautryðjun til bata þekkingar
brúkaðrar, sem ósjálfrátt bætir
til batnaðar hegðun mannsskepnunar.
Skuldlaust, að lokum.
Í leiðslu ég leiddur er fram í ljós
kenninga - kennslustund innri þekkingar,
viðurkenning vitundar allt til endingar.
Svo, samvizkulega sinna ég má
því takmarki að mjúkri lendingu ná.
Friðinn í hjartanu úr Helju heimta
og fagna frelsinu nýfundna.
Skuldlaust, að lokum.
reglu og ráðum reyrður
um hinar ríkulegu rökræður
réttsýnna ragna og gerði mér
gagn og gaman af því
að reglulega móta til framfærslu
festu þess glaums sem
gefinn er hinni lúmsku áætlun.
Skuldlaust, að lokum.
Sú gefjun mér var falin í byrjun;
brautryðjun til bata þekkingar
brúkaðrar, sem ósjálfrátt bætir
til batnaðar hegðun mannsskepnunar.
Skuldlaust, að lokum.
Í leiðslu ég leiddur er fram í ljós
kenninga - kennslustund innri þekkingar,
viðurkenning vitundar allt til endingar.
Svo, samvizkulega sinna ég má
því takmarki að mjúkri lendingu ná.
Friðinn í hjartanu úr Helju heimta
og fagna frelsinu nýfundna.
Skuldlaust, að lokum.
Keldru - Kula
Nú kvöld er að komið,
kalt með úða og vindi.
---
Þó skíni eða skúri
þá skapa ég úr því
skemmtilegheit í orðum
- skakkt -
þó ekki úr skorðum...
Sannleikann framfæri hreinan;
ókeikan - beinan, með mínum ljúfa
og blúsaða bakrómi raddarinnar
(úr blindu tómi).
Hending þeirrar framhryndu,
hamslausu orðavindu sem ská
á móti hinu gildandi viti situr.
Í heilabúinu alinn er hiti hagyrðingar,
orðabindinga skynsemi minnar
- þeirra innri bragahátta.
(Mínar dýpstu útskýringar til allra átta)
Því Alfaðir ól sínum sonum
æðri skilning, bundinn vonum
um þroska - sem svo að lokum
mun endurspeglast í honum.
Hlusti! - hver sem heyrir!
Horfi! - hver sem eirir
í lífinu einsog það líður.
Ekkert sá græðir sem situr og bíður
eftir skilningi eða hniti -
þá uppskorið er ekkert að viti.
Muna máttu, og mundu vel,
mundu að skapið stilla (og þel)
hugsanir og það sem er hollast
til framkvæmda og framkomu
til næsta frænda!
Því, ef líf þú virðir ei
sem þitt sama þá tilvera
þín virðist einungis til ama.
Láttu frekar undan,
leyfðu lífinu
að lauga þig alsælu
- lát undan þinni
ímyndunar brælu!
Ást og yndi frekar frá þér breiddu,
öllum ókostum framhjá sneiddu
og í unað drauma skaltu þér lauma,
niður í vitið djúpt grafa
og leita hins eina og eilífa sannleika.
Að endingu skaltu svo veita
væntumþykju ofur heita,
ættingjum þínum og vinum
- sem og auðvitað öllum hinum!
kalt með úða og vindi.
---
Þó skíni eða skúri
þá skapa ég úr því
skemmtilegheit í orðum
- skakkt -
þó ekki úr skorðum...
Sannleikann framfæri hreinan;
ókeikan - beinan, með mínum ljúfa
og blúsaða bakrómi raddarinnar
(úr blindu tómi).
Hending þeirrar framhryndu,
hamslausu orðavindu sem ská
á móti hinu gildandi viti situr.
Í heilabúinu alinn er hiti hagyrðingar,
orðabindinga skynsemi minnar
- þeirra innri bragahátta.
(Mínar dýpstu útskýringar til allra átta)
Því Alfaðir ól sínum sonum
æðri skilning, bundinn vonum
um þroska - sem svo að lokum
mun endurspeglast í honum.
Hlusti! - hver sem heyrir!
Horfi! - hver sem eirir
í lífinu einsog það líður.
Ekkert sá græðir sem situr og bíður
eftir skilningi eða hniti -
þá uppskorið er ekkert að viti.
Muna máttu, og mundu vel,
mundu að skapið stilla (og þel)
hugsanir og það sem er hollast
til framkvæmda og framkomu
til næsta frænda!
Því, ef líf þú virðir ei
sem þitt sama þá tilvera
þín virðist einungis til ama.
Láttu frekar undan,
leyfðu lífinu
að lauga þig alsælu
- lát undan þinni
ímyndunar brælu!
Ást og yndi frekar frá þér breiddu,
öllum ókostum framhjá sneiddu
og í unað drauma skaltu þér lauma,
niður í vitið djúpt grafa
og leita hins eina og eilífa sannleika.
Að endingu skaltu svo veita
væntumþykju ofur heita,
ættingjum þínum og vinum
- sem og auðvitað öllum hinum!
Heimspekileg vangavelta #73
Í ölæði, vímunnar bræði
ég gengið hef lengi
burt frá því sanna.
Fyrir hef fengið
fáránleika að fynna
á síðustu tímum -
og gleymt mínu innra.
Skuld skapsins er
skilin eftir í
þeirri ringulreið
sem alltaf beið
handan við hornið.
Nútíðin fyrirfram orðin
að sögu gærdagsins.
Alúð sýnd, samt
svo sorglega alin
var á trega - týnd,
þó eftirsótt...
En þar stóð efinn
reiðu-til-búinn
fyrir nýsköpuðu stefin
síendurteknu;
dynjandi - ómandi
og anandi í huga.
Þau sannlega
sárt gátu bugað
hina ákveðnu áætlun
sem í sameiningu
við mættum
- hvert og eitt -
óháð meiningum
byggðum á leiðindum.
---
Einingar skapaðar
til lífs og lifnaðar;
hin sjálfgefna alsæla jarðar.
ég gengið hef lengi
burt frá því sanna.
Fyrir hef fengið
fáránleika að fynna
á síðustu tímum -
og gleymt mínu innra.
Skuld skapsins er
skilin eftir í
þeirri ringulreið
sem alltaf beið
handan við hornið.
Nútíðin fyrirfram orðin
að sögu gærdagsins.
Alúð sýnd, samt
svo sorglega alin
var á trega - týnd,
þó eftirsótt...
En þar stóð efinn
reiðu-til-búinn
fyrir nýsköpuðu stefin
síendurteknu;
dynjandi - ómandi
og anandi í huga.
Þau sannlega
sárt gátu bugað
hina ákveðnu áætlun
sem í sameiningu
við mættum
- hvert og eitt -
óháð meiningum
byggðum á leiðindum.
---
Einingar skapaðar
til lífs og lifnaðar;
hin sjálfgefna alsæla jarðar.
sunnudagur, 13. október 2013
Can you see it?
You see, it starts out from humanities need -
- a need to get higher in a the legal way!
As the years have gone by one another,
I've picked up some ways of many others.
I thought through time I would forget...
Utilising, and using, my mind over body.
(where no arrow tends to shoot astray)
You see, it comes from the most peculiar creed,
fractions in nature, building up captions
of creation; lingering matter, drawn to time...
In ways of revieling our selfs, we answer our feelings.
You see, you see - you see, you see
... ... ... ... ... ...
Your enemies are sometimes those
you wouldn't believe to be...
You see...
I saw and have seen;
and still see. -
You see
- a need to get higher in a the legal way!
As the years have gone by one another,
I've picked up some ways of many others.
I thought through time I would forget...
Utilising, and using, my mind over body.
(where no arrow tends to shoot astray)
You see, it comes from the most peculiar creed,
fractions in nature, building up captions
of creation; lingering matter, drawn to time...
In ways of revieling our selfs, we answer our feelings.
You see, you see - you see, you see
... ... ... ... ... ...
Your enemies are sometimes those
you wouldn't believe to be...
You see...
I saw and have seen;
and still see. -
You see
Labels:
Enska,
Heilræði,
Tvíræðni,
Vangaveltur
föstudagur, 11. október 2013
Tilraun til sátta niðurlægingar
Úr mörgu er ég gerður maður
og met allt jafnt til griða.
Lofa hvorki last né þvaður,
læt hið sanna áfram miða.
Lyganöðrur og lágar sálir,
last ég ber til ykkar.
Ykkur ég bölva og óska báli
er biturleikinn þykknar.
Reiður mjög, rjúkandi af bræði,
rökkur hylur huga minn.
Frá hatrinu fæ ég ekkert næði
fyrr en slokknar eldurinn.
Hvernig né hvaðan, enginn veit
hvert svo sem það stefnir.
En rosaleg hér var sett í reit
raun, til að sanna efnið.
og met allt jafnt til griða.
Lofa hvorki last né þvaður,
læt hið sanna áfram miða.
Lyganöðrur og lágar sálir,
last ég ber til ykkar.
Ykkur ég bölva og óska báli
er biturleikinn þykknar.
Reiður mjög, rjúkandi af bræði,
rökkur hylur huga minn.
Frá hatrinu fæ ég ekkert næði
fyrr en slokknar eldurinn.
Hvernig né hvaðan, enginn veit
hvert svo sem það stefnir.
En rosaleg hér var sett í reit
raun, til að sanna efnið.
Heilræði sjálfsins til hugans
Sjáðu við ágangi sýktra sála, nýttu þér neikvæða sáttmála - málhömlur, meinaðrar mýktar þeirra sem kunna ekki blíðu að tala; ófrjáls, frá reglu siðbóta foreldra sinna... HaHa! en sú fásinna - glötun menningar hinnar heilögu þrenningar; eða: „Ég um mig frá mér til mín“ - eða þín? Ráðum fæst ráðið undan bagga málhömlunar. Lengi lifi sá sem slengir löngutöng á móti þeim slefandi þrælum sem taldir eru í jafnvægi - en bakvið kjaftæði laga - lyga, sig fela.
Reyndu bara að rifja upp róg gleðinnar, þeirrar er þú fyrst kynntist í bernsku, en gleymdir... En reyndu - reyndu! Reyndu að spá í tal spjátrunganna; spjall þeirra, í óðum hamagangi... Þó þér máske ekki langi.
- en-
Greindu milli orða hið harmþrunga mal; hinn dauði sónn - lifandi tóm, þá án efa færð sefað þinni forvitni.
-
Að enda leiðir sérhver byrjun, framhjá sneiðir - en hugann þó seiðir. Himnesk gjöf, gefin er huga án endurgjalds og fram að lokum mun duga. Dugar, þar til að lokum kemur; þegar drottinn á dyrnar lemur - þá veistu innst inni að allt sem þú vannst þér inn var bara hland... -bjór drukkinn til vellíðunar, en nú tómir þínir Urðarbrunnar móti þér gapa; þín ímyndun sem þú sjálfinu skapar í góðri trú...
En með þessu athæfi - sem einungis leiddi að athlægi veru þinnar - þó í ró og næði, gerði eitt og sér meira en nóg. Sjáðu - og þér verður sýnt; heyrðu - og þér heyrist nýtt - orð - ólýsanlegt... Og já, reyndu; mundu, geymdu, og aldrei, aldrei því gleymdu!
- að -
Þú ert „það“ því „það“ ert þú...
svo ræktaðu vel og vertu því trúr!
Labels:
Heimspeki,
Ráðlegging,
Uppljómun,
Von
The show of lies
| If it wasn't me and it wasn't you, who else could it be except for us two? Who is there to blame, who is there to bless? Who is playing this game? - I couldn't care less. |
fimmtudagur, 10. október 2013
Redeeming ones being
Clarity of mind,
in concern to eternity
sets the line of what is
and what will be.
You see, it is the believe
you manifest
in your chest
which makes and creates
the role
of your sole -
ultimately guides you
to your higher goal...
- Simple as that
it is to react --- to
glory and graciousness
given from righteousness.
Each life is imported to this world
to seek true wealth of its purpose;
moving towards that "something" -
going backwards - yet growing,
yet failing its alternative goal...
---
Now, here's my proposal:
If I commit every bit of myself into
nurture to dedication for the future;
giving all past issues closure...
Would you take my dare, and likewise be there?
Could you honestly care..?
Gamla konan á Hlemmi
| Kuldaleg situr ein kona á bekk, kramin á sál, og á hjarta. Reynir mest megnis að vera geðþekk, meðan ríkara fólk sáran kvartar. Talar um allt milli himins og helju, hvort við mig eða þig eða aðra. Og'þó rífir þú kjaft og kallir svo belju, kerlingin samt ekki hættir að blaðra. Veit hún um hluti sem fáir af vita; hefur margan frætt um annað og eitt. Sagt agnarsögur og veitt öðrum hita, en aldrei slíkt fengið til baka greitt. Enginn þykjast vill þekkja'hana, þegar heilsar hún fólki með „hæ“. En'ef söknuð fólk finnur til sagnanna, þá skíst það beint niður'í bæ... Dvelur hún þarna alla daga, mér dásamlegt finnst hennar gagn. Og sjaldan verður þreytt sú saga, er segist hún taka næsta vagn. |
Labels:
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Mannlýsing,
Saga
Vangaveltur úr nútíma samfélagi
| „Spurning hvort maður aðeins þjálfi sinn innri mann, kannski á kortersfresti? Það er allavega hægt að reyna“. - Svo gekkk hann út. Ég horfi á eftir honum, með svívirtan spilastokk í höndunum. --- Klökkir eru karlarnir, herfa; þú kynnist þessu brátt unga mey. Inní myrkrið þeir endlaust hverfa og enginn af þeim snýr aftur heim. --- „Spurning hvort þú grafir þér ekki bara dýpri holu í hvert skifti“? Skíst framhjá Jón á hjólinu... Hann tekur ekki eftir því. Svo ég dreg djúft andan, teygi mig aftur og hlæ. --- Lætur á sér lítið bera, lifir í eigin heimi. Það er ekkert hægt að gera, ef lítilmennskan á sveimi. --- „Spurning hvort þú getir ekki lánað mér samviskuna þína á morgun“? Ég lofa að reyna mitt besta... Og hann kveður með látum. Tek af mér húfuna og allt í einu hugsa: „Ég væri alveg til í að lifa.“ |
Labels:
Geðveiki,
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Saga,
Vímuefni
Til vinkonu
| Hvað þarf ég að gera, til að fá þig til að skilja, það, hver þú ert og hvað þú verður. Tilgangslaust virðist að reyna því þú hlustar ekki á, þó innst inni þú vitir það samt. En „vinur“ þinn besti, með sína ljótu lesti, ræður yfir þér nú. Hann dregur þig frá mér, svo frekur, svo reiður. Þú skilur bara ekki hvað mér þykir vænt um þig. |
Labels:
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Heilræði,
Mannlýsing,
Saga,
Vonleysi
Draumur á 13. föstudegi
| Mig dreymdi að mig væri að dreyma, draum sem ég skildi ekki neitt. En honum vil ég helst ekki gleyma, og heldur ekki fá honum breytt. |
Ljóð um lífsleið
Þú undrandi komst inn í þennan heim,
með örlitlu voli, sem aldrei kom meir.
Þú brostir þá fallega, blíðlega'og skært;
þú varst uppfull af gleði og hjarta þitt friðað og tært.
Senn varðst þú fimm ára, ljóshærð og sæt.
Allt þótti þér mögulegt, þótt þú færir þér hægt.
Allt lék þá í lyndi og aldrei seig sól.
Þú dansaðir á rósum, klædd þínum einstaka kjól.
En svo byrjaði stríðið þitt, ár eftir ár
sál þín marg brotin, með mörg opin sár.
Þú leitaðir hlýju á vitlausum stað.
Það grunaði engan að það væri nokkuð þér að.
Svo líf þitt þú helgaðir þinni nýjustu ást
og þó hún sviki þig stöðugt, þú lést ekkert sjást.
Ferðin varð löng og hún lengdist um mun.
Leiðin var ljótari en þú þorðir að gera þér grun.
Þó sögur væru skrifaðar í bækur og rit,
þá samt enginn vissi um'það erfiðis strit
sem, særð, þú þoldir í þín fáeinu ár.
Það var öllum sama, það þurkaði engin þín tár.
með örlitlu voli, sem aldrei kom meir.
Þú brostir þá fallega, blíðlega'og skært;
þú varst uppfull af gleði og hjarta þitt friðað og tært.
Senn varðst þú fimm ára, ljóshærð og sæt.
Allt þótti þér mögulegt, þótt þú færir þér hægt.
Allt lék þá í lyndi og aldrei seig sól.
Þú dansaðir á rósum, klædd þínum einstaka kjól.
En svo byrjaði stríðið þitt, ár eftir ár
sál þín marg brotin, með mörg opin sár.
Þú leitaðir hlýju á vitlausum stað.
Það grunaði engan að það væri nokkuð þér að.
Svo líf þitt þú helgaðir þinni nýjustu ást
og þó hún sviki þig stöðugt, þú lést ekkert sjást.
Ferðin varð löng og hún lengdist um mun.
Leiðin var ljótari en þú þorðir að gera þér grun.
Þó sögur væru skrifaðar í bækur og rit,
þá samt enginn vissi um'það erfiðis strit
sem, særð, þú þoldir í þín fáeinu ár.
Það var öllum sama, það þurkaði engin þín tár.
Labels:
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Mannlýsing,
Saga
Satt og ósatt
Satt:
Stór heimur, lítið líf,
lítil sál, lítil hlíf.
Stór veröld, lítið magn,
lítil ást, lítið gagn.
Mikið um hatur, fátt um frið,
falleg stúlka féll í dag,
með skotsár á kvið.
Ósatt:
Lítill heimur, stórt líf,
stór sál, stór hlíf.
Lítil veröld, mikið magn,
mikil ást, hefur gagn.
Lítið um hatur, mikið um frið,
fegurðin fæddist til lífsins í dag;
frelsi og réttindi lifa mennirnir við.
Stór heimur, lítið líf,
lítil sál, lítil hlíf.
Stór veröld, lítið magn,
lítil ást, lítið gagn.
Mikið um hatur, fátt um frið,
falleg stúlka féll í dag,
með skotsár á kvið.
Ósatt:
Lítill heimur, stórt líf,
stór sál, stór hlíf.
Lítil veröld, mikið magn,
mikil ást, hefur gagn.
Lítið um hatur, mikið um frið,
fegurðin fæddist til lífsins í dag;
frelsi og réttindi lifa mennirnir við.
Eitt af óskrifuðu lagaákvæðum þjóðarinnar
Allt,
eða
ekkert..?
Það er svo skrítið
hversu þunn línan er,
milli þess hvað telst vera mikið
og svo hitt, lítið.
Flest þú skalt eiga,
og sýna þú þarft
svo komist þú lifandi af
útúr þessum heimi.
eða
ekkert..?
Það er svo skrítið
hversu þunn línan er,
milli þess hvað telst vera mikið
og svo hitt, lítið.
Flest þú skalt eiga,
og sýna þú þarft
svo komist þú lifandi af
útúr þessum heimi.
Rauð hár
Ó hve rautt hár þitt fagurt er
- eins og silki, nýbúið að spinna.
All ljúfleg þú ert svo leifðu nú mér
lokkana góðu snerta, og finna.
Niður ljúft leggjumst, hlið við hlið,
og'í hljóði elskumst gegnum nætur.
Hárið frjálst; hér fáum við frið,
frið meðan gítarinn grætur.
Snertu mitt - ég snerti þitt,
fléttum svo fax okkar saman.
Í leik okkur veltum um'allt rúmið,
oh, hvað það verður gaman.
Svo ef við giftumst og eignumst börn,
ástin rauða, mun lita okkar daga.
Tíminn mun vera okkar eigin tjörn
sem tilbúna svölun við fáum að hafa.
- eins og silki, nýbúið að spinna.
All ljúfleg þú ert svo leifðu nú mér
lokkana góðu snerta, og finna.
Niður ljúft leggjumst, hlið við hlið,
og'í hljóði elskumst gegnum nætur.
Hárið frjálst; hér fáum við frið,
frið meðan gítarinn grætur.
Snertu mitt - ég snerti þitt,
fléttum svo fax okkar saman.
Í leik okkur veltum um'allt rúmið,
oh, hvað það verður gaman.
Svo ef við giftumst og eignumst börn,
ástin rauða, mun lita okkar daga.
Tíminn mun vera okkar eigin tjörn
sem tilbúna svölun við fáum að hafa.
Labels:
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Mannlýsing,
Von
Geðveiki
| Meðan tíminn dansar tangó uppá grín þá tómlegt húsið stendur autt. Meðan ekkja syrgir fallin börnin sín silfrað tunglið verður rautt. Vindurinn veinar svo illa að mig sker, veltur á sjónum agnar dugga. Gleymandi að gá vel að sjálfum sér, sefur Gamli við opinn glugga. Himininn brennur við hafsins enda, og heltekur mannkyn sú sín. Löngu kominn tími á'að lenda, en leyfi mér að gera'af því grín. Nafar milli Hana og Hænu, held ég uppá Gónhólinn. Loksins ég reis, þó með litla rænu og reyni að lifa fram á jólin. Dagur niður dettur og nóttin rís, og dimmt er mjög yfir hér nyrðra. Hér bræður sárt berjast, á landi íss; blákallt þeir hvorn annan myrða. |
Labels:
Áfengi,
Geðveiki,
Grín,
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Saga,
Tvíræðni,
Tækifærisvísur,
Vímuefni
Útgeislun
Yfir fjöllin rís nú hin fagra sól,
fyrir öllum sig sýnir útum allt.
Ég sé hana fyrstur því ég stend uppá hól,
og loksins mér hættir að vera kalt.
Með fögrum geislunum vel hún sig ber,
í dáleiðslu allt annað horfir hana á.
Líkt og perlu, í opinni hörpuskel -
hana vilja helst allir að eiga fá.
fyrir öllum sig sýnir útum allt.
Ég sé hana fyrstur því ég stend uppá hól,
og loksins mér hættir að vera kalt.
Með fögrum geislunum vel hún sig ber,
í dáleiðslu allt annað horfir hana á.
Líkt og perlu, í opinni hörpuskel -
hana vilja helst allir að eiga fá.
Á dansleik
Lengi hafði hann þráð hana heitt -
helming rúman ævi sinnar.
Þessi töfrandi augu og brosið breitt
og þessar sætu mjúku kinnar.
Þau hittust á dansleik og stigu dans,
dönsuðu um gólfið lengi saman.
Í sælunnar vímu féll hann í trans,
oh, hvað honum fannst þetta gaman.
Labels:
Gleði,
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Saga
Sjón er sögu leiðinlegri
| Blóm. Kertastjaki. Hilla. Glerborð. Fánastöng. Flugvél. Dvergur. Eldriborgari. Gúrka. Sandur. Fugl. Kátína. Hörpuskel... - Paradís. |
Labels:
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Lýsing
Samband rofið
Ég heyrði'að þú værir komin heim,
þú sem ætlaðir ekki að vera sein
að hringja í mig og láta heyra í þér.
Við sömdum um það í fyrri tíð
að við skyldum vera við það þíð
að skrifast á, og hringja inn á milli.
En í staðinn er ekki bleki eitt;
símareikningurinn er ekki neitt
og ég skil ekki hvað hefur komið fyrir.
Og það er svo sárt að vita það
að þú gangir ekki beint í hlað -
til mín og heilsir með ljúfum kossi.
Þú veist að ég gengi á eftir þér
eins langt og sjálfur heimurinn er -
en því miður, þú vilt ekki taka eftir.
þú sem ætlaðir ekki að vera sein
að hringja í mig og láta heyra í þér.
Við sömdum um það í fyrri tíð
að við skyldum vera við það þíð
að skrifast á, og hringja inn á milli.
En í staðinn er ekki bleki eitt;
símareikningurinn er ekki neitt
og ég skil ekki hvað hefur komið fyrir.
Og það er svo sárt að vita það
að þú gangir ekki beint í hlað -
til mín og heilsir með ljúfum kossi.
Þú veist að ég gengi á eftir þér
eins langt og sjálfur heimurinn er -
en því miður, þú vilt ekki taka eftir.
Labels:
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Mynningar,
Saga,
Skot,
Vonleysi
miðvikudagur, 9. október 2013
Frome
Take your youth away,
and give it to the man
who walks alone,
alone down a dark road.
Take your breath away,
and give it to the lady
who gives her word for eternity,
eternity to the valley of the dead.
Take your time
doing these things
and I give you my word;
your sole will find piece.
- Serenity will rule your head.
and give it to the man
who walks alone,
alone down a dark road.
Take your breath away,
and give it to the lady
who gives her word for eternity,
eternity to the valley of the dead.
Take your time
doing these things
and I give you my word;
your sole will find piece.
- Serenity will rule your head.
Kannski
Þegar eitthvað er endalaust
þungt, svo þú ræður ekki við.
Langar þig þá ekki til að berja
einhver í höfuðið með hamri..?
þungt, svo þú ræður ekki við.
Langar þig þá ekki til að berja
einhver í höfuðið með hamri..?
Óboðinn gestur
| Donk! (Bjórdós kastað í rúðu...) X: Er þessum gaur boðið? Y: Er þetta gaur með sítt rautt hár? X: Já... Y: Nei, honum er ekki boðið! |
Labels:
Depurð,
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Mynningar,
Saga
Skyndikynni
| Sjálfsagt það almennt þykir skrítið, samt er það svona dagsatt. Að'þó ég þekkti þig minna en lítið, þá féll ég hraðar en hratt. |
Ósk
Ég vildi 'ég gæti skrifað eins og Poe,
eða ort líkt'og Hjalli frá Bólu.
En það er ekki séns - og þó,
ekki nema 'ég fengi hugmynda-gjólu.
eða ort líkt'og Hjalli frá Bólu.
En það er ekki séns - og þó,
ekki nema 'ég fengi hugmynda-gjólu.
Málið
| Ég vildi að ég gæti hugsað áður'en um verður seinan. Því við það að vona, ég hef ekki slugsað; því er ég ekkert að leyna. Þungt hefur mér þótt hugsað skýrt en þó haft á því gætur, að hugsa samt alltaf um eitthvað hýrt, ef lúri ég einn um nætur. Grun ég hef um'að þér hitni, höfðinu í, við að skilja mitt mál - 'Því þau orð sem ég hef, ei teljast hnittin; í hjarta vorar þjóðar, 'og sál. |
Labels:
Depurð,
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Lýsing,
Von,
Vonleysi
Sumarhugsun
| Á grænni grundu stóð ég einn, grúskandi í höfði mínu með nál. Hugsandi hvort sé betra að vera steinn, eða lifandi maður með sál. Ég veit ekki hvort er betra, eða best, enn þann daginn í dag. Þó maðurinn sjálfur deyi fyrir rest, þá vil ég vera steinninn í dag. |
10 sec. from the mind of a psychopath
What is this, what is that? Sitting in the dark I ask my self this question over and over again...
This is this, and that is that. I hear coming from the walls... But there isn't
anybody there. So I hold my breath down, hoping I can kill my self that way but every time I do it someone interrupts me...
Little, purple, shining creature, who are you?
Are you the one, the one who gets me there in the end? Then why don't you let me do it? Just let me die! Let me end it, like everyone else who are locked up in this white room!
Ooh!
I can´t take it any more! I want it so badly, to dissolve into the abyss...
The next morning the dark is darker then dark and death is deeper in nature.
This is this, and that is that. I hear coming from the walls... But there isn't
anybody there. So I hold my breath down, hoping I can kill my self that way but every time I do it someone interrupts me...
Little, purple, shining creature, who are you?
Are you the one, the one who gets me there in the end? Then why don't you let me do it? Just let me die! Let me end it, like everyone else who are locked up in this white room!
Ooh!
I can´t take it any more! I want it so badly, to dissolve into the abyss...
The next morning the dark is darker then dark and death is deeper in nature.
Labels:
Ádeila,
Áfengi,
Enska,
Geðveiki,
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Lýsing,
Lærdómur,
Saga,
Vitfirring,
Vímuefni
Eyðinlegging
Í kvöld, var tunglið ekki til
og tilgangur sólarinnar enginn.
Magn tilgangsleysunnar jóks til fulls
og tíminn stoppaði í andardrætti alheimsins.
Í kvöld, rigndi blóði yfir heilaga jörð
og sár hjörtu okkar dóu.
Því kaldur veturinn syrgir sína ást í kvöld
og lætur það bitna á okkur.
Í kvöld, fraus Jörðin og hætti að snúast
og sjúkleikinn náði hámarki.
Menn létust af völdum bræðra sinna í kvöld
og á meðan skapari okkar grét.
Í kvöld, vanvirtum við gjöfina frá föður okkar
og svívirtum vald hans með illu.
Það er svo skrítið að hann skuli ekki reiðast, í kvöld
og eyða þessari sköpun sinni.
og tilgangur sólarinnar enginn.
Magn tilgangsleysunnar jóks til fulls
og tíminn stoppaði í andardrætti alheimsins.
Í kvöld, rigndi blóði yfir heilaga jörð
og sár hjörtu okkar dóu.
Því kaldur veturinn syrgir sína ást í kvöld
og lætur það bitna á okkur.
Í kvöld, fraus Jörðin og hætti að snúast
og sjúkleikinn náði hámarki.
Menn létust af völdum bræðra sinna í kvöld
og á meðan skapari okkar grét.
Í kvöld, vanvirtum við gjöfina frá föður okkar
og svívirtum vald hans með illu.
Það er svo skrítið að hann skuli ekki reiðast, í kvöld
og eyða þessari sköpun sinni.
Labels:
Ádeila,
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Heimspeki,
Lýsing,
Saga,
Tvíræðni,
Vangaveltur
Áðan
Er við siglum saman yfir blóðrauðan sjó,
sofandi vært og blinduð af ást.
Vid vitum ekki að í nótt einhver dó
og við sorg við brátt munum kljást.
sofandi vært og blinduð af ást.
Vid vitum ekki að í nótt einhver dó
og við sorg við brátt munum kljást.
Smá spekúlering um Jesú
Fyrir löngu var maður krossfestur,
hengdur upp á spítu og negldur þar við.
Á jörðunni var hann álitinn gestur,
sem fór ekki saman við mannanna sið.
Þessi „einhver“ var ekki sá er við sáum,
sí betlandi um pening og sleikjandi ryð.
Heldur maðurinn sem á himninum bláum,
situr við „Hans allra hæsta" hægri hlið.
Eftir að hyggja var hann góður maður,
fórnaði sér fúslega fyrir sína.
Þó margir tryðu að orð hans væru þvaður,
þá hitar hann upp sálu mína.
hengdur upp á spítu og negldur þar við.
Á jörðunni var hann álitinn gestur,
sem fór ekki saman við mannanna sið.
Þessi „einhver“ var ekki sá er við sáum,
sí betlandi um pening og sleikjandi ryð.
Heldur maðurinn sem á himninum bláum,
situr við „Hans allra hæsta" hægri hlið.
Eftir að hyggja var hann góður maður,
fórnaði sér fúslega fyrir sína.
Þó margir tryðu að orð hans væru þvaður,
þá hitar hann upp sálu mína.
Dalagrafarinn
Maðurinn mokar upp í mót
meðan kötturinn tárast.
Drífðu þig Drífa, vertu nú skjót,
dalurinn annars mun klárast.
meðan kötturinn tárast.
Drífðu þig Drífa, vertu nú skjót,
dalurinn annars mun klárast.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)